Erfitt í Kjarrá

Per með fyrsta laxinn úr Kjarrá í morgun, ásamt þeim …
Per með fyrsta laxinn úr Kjarrá í morgun, ásamt þeim Hallgrími H. Gunnarssyni og Erik Koberling. Sigurjón Ragnar

Kjarrá í Borgarfirði opnaði í morgun af hópi erlendra veiðimanna. Einstaklega erfiðar aðstæður eru við ána vegna vatnsleysis og því til viðbótar er stífur, kaldur norðaustan vindur með glampandi sólskini og er veiðin eftir því. 

Vatnsmagn árinnar er með þeim hætti að margir veiðistaðir sem alla jafna eru góðir eru ekki virkir sökum vatnsleysis. Þeir laxar sem virðast hafa náð að komast upp áður en vatnið lækkaði svo mikið halda til í dýpstu veiðistöðum árinnar og mjög varir um sig.

Að þessu sinni var opnunin í Kjarrá seld til fjölþjóðlegs hóps veiðimanna sem koma frá Ástralíu, Englandi og Noregi og taka þeir þessu afbrigðilega ástandi með jafnaðargeði enda allt vanir veiðimenn.

Þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður náðist þó einn lax á land í morgun á veiðistaðnum Efri Johnsson af norska veiðimanninum Per Mikkelssen og var það tæplega 80 cm hrygna sem tók litla sunray shadow túpu.

Aðeins lítill hluti þessa langa veiðisvæðis var veiddur í morgun á fjórar veiðistangir og verður efsti og neðsti hluti þess kannaður eftir hádegið.

Umræddur Per er hér á landi með Björn  bróður sínum en þeir eru svokallaðir „boatmen“ og landeigendur af aðalveiðisvæði Alta árinnar í Noregi sem er án efa frægasta laxveiðiá heims þar sem margir af stærstu Atlantshafslöxum hafa veiðst í gengum tíðina.  Er þetta svæði rekið af félaginu Alta Laksefiskeri Interessensskap sem stofnað var árið 1725 og er það um 27 kílómetra langt svæði sem aðeins er veitt með 10 stöngum.

Eru þeir Björn og Per yfirleiðsögumenn á svæðinu og hafa yfir 25 ára reynslu til viðbótar að hafa alist upp á bökkum árinnar.  Eru þeir kallaðir „boatmen“ því mikið er veitt af bátum í ánni sem er mikið stórfljót og getur verið gríðarlega straumhörð.

Norsku bræðurnir eru því við gjörólíkar aðstæður þessa daganna eins og ástandið er núna í Borgarfirðinum.

Veiðmenn reyna að láta lítið fyrir sér fara í vatnsleysinu …
Veiðmenn reyna að láta lítið fyrir sér fara í vatnsleysinu við Kjarrá. Sigurjón Ragnar
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert