Veiði hófst í Skjálfandafljóti í gær og lofar fyrsti dagur góðu um framhaldið. Alls komu sex laxar á land og voru aðstæður góðar. Stefán Sigurðsson hjá Iceland Outfitters sem er með ána á leigu sagði í samtali við Sporðaköst í gær að opnunin hefði verið virkilega góð. „Það voru að koma fiskar víða og það virðist sem laxinn hafi dreift sér ágætlega. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af vatnsleysi í Skjálfandafljótinu.“
Alls komu sex laxar á land í gær sem var opnunardagur. Tveir laxar veiddust í Barnafelli og fjórir á svokölluðum Austurbakka. Þá misstu veiðimenn að auki tvo væna laxa. Skjálfandafljót er magnað veiðivatn með mikilli bakkalengd og ógrynni veiðistaða. Þar þarf víða að ganga en þeir sem nenna að leggja á sig slíkt ferðalag uppskera oft í samræmi við dugnað.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |