Kótelettur og majónes í Dölunum

Majóneskakan góða. Alvöru flugur voru skryting á kökunni og gátu …
Majóneskakan góða. Alvöru flugur voru skryting á kökunni og gátu gestir valið sýna flugu. Ljósmynd/Hreggnasi

Kótelettur í raspi, brauðterta af gamla skólanum og urriðar voru í aðalhlutverki í veiðihúsinu Þrándargili á opnunardegi Laxár í Dölum. Veiði hófst í morgun og eru aðstæður einkar erfiðar eins og svo víða með laxveiðiár á Vestur- og Suðurlandi.

Átta urriðar veiddust og sáust nokkrir laxar, meðal annars í Neðri-Kistu, Papa, Þegjanda og Sólheimafossi. Stefán Sigurðsson er einn þeirra sem er við opnunina. „þetta eru virkilega erfið skilyrði og áin er afar lítil. Vonandi gengur veðurspá næstu viku eftir og fer að rigna. Áin þarf nauðsynlega á því að halda,“ sagði Stefán í samtali við Sporðaköst.

Harpa Hlín Þórðardóttir með fallegan urriða úr Dölunum. Hún landaði …
Harpa Hlín Þórðardóttir með fallegan urriða úr Dölunum. Hún landaði sex í morgun. Ljósmynd/SS

Hádegismaturinn var ekki af verri endanum. Sara Pétursdóttur eldar ofan í mannskapinn og bauð upp á kótelettur í raspi með öllu tilheyrandi. Þá lagaði Sara magnaða brauðtertu að sögn Stefáns. „Ef einhver kann á rasp og majó þá er það Sara Pétursdóttir.“

Athygli vakti að majónestertan var skreytt alvöru laxaflugum og gátu gestir skorið sér sneið með þeirri flugu sem þótti mest spennandi. Ljóst er að Sara sló í gegn hjá hollinu.

Stefán Sigurðsson sagðist eiga von á því að þegar liði á daginn og sólin hyrfi bak við ský gæti eitthvað skemmtilegt farið að gerast.

Fyrsti laxinn úr Hafralónsá. Veiðimaður er Jón Þór Júlíusson, einn …
Fyrsti laxinn úr Hafralónsá. Veiðimaður er Jón Þór Júlíusson, einn af eigendum Hreggnasa, sem leigir Hafralónsá. Ljósmynd/Hreggnasi

Hafralónsá opnaði í morgun

Hin kyngimagnaða Hafralónsá opnaði í morgun. Fyrsti fiskurinn veiddist fljótlega en litlar upplýsingar liggja fyrir. Nóg vatn er í Hafralónsá og er hún ekki plöguð af þurrkum eins og ár í öðrum landshlutum. Hafralónsá rennur í miklum gljúfrum og er þar mikil náttúrufegurð. Áin fóstrar einnig rígvænar bleikjur og eru þær eftirsóknaverðar fyrir marga veiðimenn.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert