Víða ógnarstórir hængar á ferðinni

Jóhann Birgisson með fyrsta laxinn sem veiddist í Soginu þetta …
Jóhann Birgisson með fyrsta laxinn sem veiddist í Soginu þetta sumarið. 85 sentimetra fiskur úr Landaklöpp. Ljósmynd/Aðsend

Stórstreymi er um miðja vikuna og vilja menn sjá vaxandi smálaxagöngur í þann straum. Ljóst er að sumarið með tilliti til laxveiðinnar ræðst af göngum í þennan straum og þann næsta sem er rétt eftir miðjan mánuðinn. Víða hefur frést af ógnarstórum hængum sem nú eru að ganga með smálaxinum. Einn slíkur sást í Brúarstreng í Laxá í Dölum, Sett hefur verið í nokkra af þessum fiskum í Víðidalsá en einungis einn komið á land, eins og greint var frá í Sporðaköstum um helgina.

Elliðaárnar fara heldur ekki varhluta af þessu og þar hefur hlutfall stórlaxa verið óvenjuhátt. Á hinn bóginn bíða menn í ofvæni eftir að sjá hvað gerist með smálaxinn á næstu dögum.

Gunnar Egill Sigurðsson var við veiðar í Hafralónsá í Þistilfirði í síðustu viku. Hann setti í mikla skepnu í veiðistaðnum Þrælnum. Skemmst er frá því segja að fiskurinn rauk niður flúðirnar fyrir neðan hylinn og lauk þessari viðureign ekki fyrr 500 metrum neðar og þrjátíu mínútum síðar. Fiskurinn tók Sunray shadow með miklum látum og mældist 97 sentimetrar.

Gunnar Egill með 97 sentimetra hænginn sem hann setti í …
Gunnar Egill með 97 sentimetra hænginn sem hann setti í á veiðistaðnum Þrælnum í Hafralónsá. Ljósmynd/Aðsend

Gunnar sagði í samtali við Sporðaköst að þeir hefðu sama daginn misst tvo aðra stórlaxa. „Hér er mikið vatn og tökurnar eru grannar. Það er líka gaman að segja frá því að mikið ber á afar fallegum sjóbirtingi í ósnum og eru margir þeirra á bilinu fjögur til fimm pund,“ sagði Gunnar.

Stórlax úr Syðri-Brú

Fyrsti laxinn sem veiddist í Soginu og Sporðaköst hafa heyrt af, kom af efsta veiðisvæði árinnar, Syðri-Brú. Það var Jóhann Birgisson sem veiddi hann á þeim þekkta veiðistað Landaklöpp. Laxinn mældist 85 sentimetrar og var hnausþykkur og eftir því sterkur. Afar spennandi verður að fylgjast með Soginu í sumar en þar var mikil aukning í veiði í fyrra. Silungsveiðin í Soginu var virkilega góð í vor og var mörgum stórbleikjum landað, sérstaklega í landi Ásgarðs.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert