Árni harðorður í garð netabænda og fleiri

Frá Heimahyljunum á efsta svæðinu í Stóru-Laxá.
Frá Heimahyljunum á efsta svæðinu í Stóru-Laxá. Árni Baldursson

Árni Baldursson er líklega einn þekktasti stangveiðimaður landsins og jafnframt leigutaki af mörgum veiðisvæðum hér á landi. Má segja að Árni sé atvinnumaður í faginu og veiðir stærstan hluta ársins á Íslandi og víða um heim.

Það má því segja að þar tali maður af reynslu og eftir því tekið sem hann mælir í heimi stangveiðinnar. Fyrr í dag birti hann færslu á fésbókarsíðu sinni undir fyrirsögninni „Nú er netin komin niður aftur....“, en Árni er leigutaki Stóru-Laxár í Hreppum í gegnum fyrirtæki sitt Lax-á og er umfjöllunarefnið meðal annars  laxveiði í net í Ölfusá og Hvítá í Árnessýslu. 

Árni segir svo frá: „Uppár Árnessýslu eru vatnslausar, Stóra Laxá er að þrotum komin með rennsli aðeins upp á 4 - 6 rúmmetra. Laxinn okkar kemst ekki upp í ána sína á leið sinni heim upp á hrygningarstöðvarnar, hann er einhverstaðar ráðvilltur niður í Hvítá. Nú eru netin kominn niður af fullum krafti, lítið og tært vatn er í Ölfusá og Hvíta, kjöraðstæður fyrir netaveiðibændur að valda sem mestu tjóni á hrygningarlaxinum sem kemst ekki upp árnar. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað verður drepið af laxi núna í netunum. Við erum með hinar ýmsu opinberar eftirlitstofnanir reknar af ríkinu svo sem Fiskistofu, Veiðimálastofnum ofl., þessar stofnanir hafa það verkefni að halda uppi veiðistjórnun og vernda fiskistofnana okkar. Netaveiðibændum í Ölfusá og Hvíta hafa ekki verið settar neina reglur, engar nýtingaráætlanir, engir veiðikvótar ekki neitt, þessar stjórnlausu netaveiðar hafa ekki náð athygli þessara eftirlitstofnana , þeim er sko alveg nákvæmlega sama ! Þetta er ekki neinn smá skandall, þetta er alvöru skandall, við höfum tekið mörg skref núna í áttina að því að útrýma íslenska laxastofninum og bætum bara við dash af fiskeldi í sjókvíum þá er þetta bara búið ... til hamingju með það allir, þá getum við bara farið á bútasaum og prjónanámskeið hjá Veiðifélagi Árnesinga og Fiskistofu. Árni Baldursson p.s veiðin á Íslandi er sú versta á landsvísu í manna minnum og skiptir þá ekki máli hvort árnar hafa vatn eða ekki, ætla menn ekki virkilega að vakna upp?“

Með færslu þessari birtir Árni mynd frá efsta svæðinu í Stóru Laxá og segir „ .... horft upp í Heimahylji. Stóra Laxá er ein alfallegasta á í veröldinni , en tollurinn sem tekinn er af henni .. guð hjálpi mér!“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert