Risalaxar á sveimi í Laugardalsá

Stærri laxinn stingur sér í gegnum teljarann á mikilli ferð.
Stærri laxinn stingur sér í gegnum teljarann á mikilli ferð. Riverwatcher

Á laugardaginn var gekk risalax í gegnum teljarann í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi.

Á vefsíðunni riverwatcherdaily.is er hægt að fylgjast með gönguferðum laxfiska í nokkrum ám á landinu þegar þeir ganga í gegnum þar til gerða teljara.

Það var síðastliðinn laugardag að tveir höfðingjar gengu í ána með nokkurra klukkustunda millibili. Sá fyrri gekk í gegn klukkan 12:20 og reyndist vera 105 sentimetrar að lengd. Sá seinni gekk þar í gegn klukkan 17:14 og var mældur 111 sentimetra hængur sem er ekki langt frá 30 pundum, en mikilvægt væri að vita ummál þeirra til að fá nákvæmari þyngd fram.

Þennan dag gengu einnig þrír smálaxar til viðbótar í gegnum teljarann, ásamt einum urriða. Í sumar hafa 77 fiskar átt leið þar í gegn og einhver hluti þeirra eru silungar.

Stangaveiðifélag Reykjavíkur er leigutaki að Laugardalsá en ekkert hefur frést af veiðiskap þar í sumar.

Hægt er að berja skepnurnar augum hér

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert