Góð veiði í Hafralónsá

Klifrað niður í Þrælinn í Hafralónsá.
Klifrað niður í Þrælinn í Hafralónsá. Ljósmynd/Aðsend

Góðar fréttir berast frá Hafralónsá í Þistilfirði, en veiðimenn sem hættu á hádegi í gær tóku 27 laxa á tvær stangir eftir þriggja daga veiði.

Að sögn Vigfúsar Orrasonar, sem var að veiða í ánni með bandarískum vini sínum, lentu þeir í hálfgerðri veislu. Voru þeir einbíla og veiddu þar af leiðandi langmest saman, um sjö klukkustundir á dag þar sem fremur kalt og hráslagalegt var úti við megnið af tímanum.

Þrátt fyrir það náðu þeir 27 löxum á land og var stærstur hluti þeirra tveggja ára stórlaxar, allt að 87 cm. Til viðbótar misstu þeir slatta. Allt veiddist fyrir neðan Gústa og var Collie Dog áltúpa að gefa langmest af aflanum.  

Þegar þeir yfirgáfu ána á hádegi í gær var búið að færa 39 laxa til bókar.

Veitt í Stapa í Hafralónsá.
Veitt í Stapa í Hafralónsá. Ljósmynd/Aðsend
Veitt í Gústa í Hafralónsá.
Veitt í Gústa í Hafralónsá. Ljósmynd/Aðsend
Hrotti ofarlega í Hafralónsá.
Hrotti ofarlega í Hafralónsá. Ljósmynd/Aðsend
Tunguárhylur sem var gjöfull þessa daga.
Tunguárhylur sem var gjöfull þessa daga. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert