Stórar bleikjur á land úr Eyjafjarðará

Bergþór hampar risableikjunni áður en hann sleppti henni aftur út …
Bergþór hampar risableikjunni áður en hann sleppti henni aftur út í ána. Ljósmynd/Aðsend

Risableikja kom á land úr Eyjafjarðará í dag þegar þekkt aflakló þar á bökkunum árinnar, Bergþór Ásgrímsson, landaði 76 cm bleikju.

Í spjalli við Bergþór kom fram að hann hefði verið að veiða á svæði fjögur fyrir hádegið í dag.  Á land komu 11 vænar bleikjur á þessari vakt, en sú stærsta tók rétt í lok vaktar í síðasta kastinu neðst á fyrir landi Hrísa.

Fram kom hjá Bergþóri að tekið hafi um 25 mínútur að landa þessum „bleikjukóng“ þar sem Bergþór hafi þurft að taka á sprett eftir honum einhverja 100 metra niður eftir ánni. Kvaðst Bergþór hafa orðið löðrandi sveittur eftir átökin því hann hefði engu við ráðið skepnuna fyrstu 15 mínúturnar. Tók bleikjuhængurinn stóri Pheasant tail kúluhaus.

Sagði Bergþór að þrír risahængar hefðu meðal annars veiðst á þessum dagspart, hver öðrum feitari og fallegri og mældust þeir samtals 204 cm á lengdina. 

Eiginkona Bergþórs var einnig með í för og landaði sinni fyrstu bleikju á flugu sem var 63 cm á lengdina.

Eyjafjarðará hefur löngum verið þekkt fyrir stórar bleikjur en þann 5. júlí veiddist önnur litlu minni en hjá Bergþóri í dag, 74 cm sem tók Krókinn á Munkaþverárbreiðu á svæði eitt.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert