Bleikjan mætt í Hörgá

Falleg bleikja úr Hörgá í vikunni.
Falleg bleikja úr Hörgá í vikunni. svak.is

Samkvæmt upplýsingum frá Stangveiðifélagi Akureyrar þá er sá  tími genginn í garð að bleikjan byrji að ganga upp í Hörgá í verulegu magni. Eitthvað er byrjað að fréttast af veiði úr ánni.

Hörgá er vatnsmikil og oftast er smá litur á henni. Veiðisvæðin eru sjö og veitt á tvær stangir á hverju svæði.

Fréttist af veiðimanni sem var við veiðar á svæði 5 A í Hörgá fyrr í vikunni sem landaði  fimm bleikjum og missti annað eins. Veiddi hann í þrjá tíma og var sú stærsta 62 cm. 

Veiðisvæðin eru fjölbreytt í ánni en líklega er Bægisárhylur sá þekktasti, þar sem bleikjan safnast fyrir áður en hún heldur ferð sinni áfram upp Öxnadalinn.

Á svæði 4 b í Hörgárdalnum er áin vatnsminni og minna lituð sérstaklega þegar komið er upp fyrir Barká, eina af þverám Hörgár sem kemur úr Barkárjökli.

Svo eru þeir sem vilja ganga niður eyrarnar á svæði 3 og 4 a þar sem myndast margir nýir veiðistaðir ár hvert þar sem áin breytir sér þarna talsvert á milli ára. 

Það er leyfilegt að veiða á allt agn í Hörgánni og er enginn kvóti er á afla. Félagið treystir veiðimönnum til þess að ganga gætilega um stofninn og sleppa stærstu bleikjunni ef hún er ósærð. Bleikjustofninn hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár, en veiði á bleikju hefur þó verið heldur uppá síðast liðin tvö ár.

Sumarið 2018 veiddust 661 fiskur í Hörgá sem skiptust í 569 bleikjur og 92 urriða.

Frá Hörgá í vikunni sem er að líða.
Frá Hörgá í vikunni sem er að líða. svak.is
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert