Eystri-Rangá er eina laxveiðiáin þar sem veiði er virkilega góð þessa dagana og nokkuð betri en á sama tíma í fyrra. Óhætt er að tala um mokveiði þar um þessar mundir.
Samkvæmt upplýsingum frá umsjónarmanni árinnar komu 67 laxar á land þar í gær og 81 deginum þar á undan. Í dag komu svo 92 laxar á land og er „myljandi“ smálax að ganga þessa dagana í bland við þá stærri sem fyrir eru.
Heildarveiðin í kvöld fór þar með yfir 1.000 laxa og er hún fyrsta laxveiðiáin sem nær því. Heildarveiði síðasta sumar var 3.960 laxar, en veiða má á allt að 18 stangir þar á dag.
Frá Ytri-Rangá berast einnig fréttir þess efnis að veiðin hafi verið að aukast síðustu daga eftir fremur rólega byrjun. Telja menn þar eystra sig sjá merki þess að fyrstu alvörusmálaxagöngur sumarsins séu að skila sér inn.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |