Hreindýraveiðar hófust þann 15. þessa mánaðar, þegar veiði á törfum hófst. Búið er að fella á fjórða tug tarfa á nánast öllum svæðum. Þoka hefur sett strik í reikninginn og ýmsir lent í ævintýrum við veiðina. Ólafur Vigfússon og María Anna Clausen kona hans voru með þeim fyrstu að fella dýr á þessari vertíð. Svæðin eru níu talsins og spanna alla austfirðina suður í Suðursveit.
„Við áttum þann nítjánda bókaðan með veiðileiðsögumanni á svæði tvö. Okkar leiðsögumaður var Jón Egill Sveinsson. Aðstæður voru afar erfiðar. Svarta þoka og ekkert skyggni lungann úr deginum.
Í stutta stund rofaði til og við sáum 30 til 40 dýra hjörð í fjarska. Við keyrðum áleiðis en gengum svo nánast fram á þau þar sem rétt glitti í hjörðina í niðdimmri þokunni. Hjörðin virtist róleg á flatlendi og mjög erfitt að komast í öruggt færi. Eftir að hafa skriðið síðasta spölinn á maganum náðum við að fella tvo myndarlega tarfa,“ sagði Ólafur í samtali við Sporðaköst. Eins og sjá má á þokumyndinni var skyggni afar lítið og það var ekki nema hálftíma gluggi sem þau hjón fengu. Nánast um leið og verkinu var lokið skall þokan á af fullum þunga og vart ratandi á heiðum.
„Aðstæður fyrir austan eru erfiðar. Það rignir, er þykk þoka og lítið skyggni. Það skiptir höfuðmáli við þessar aðstæður að vera með toppleiðsögumann sem gjörþekkir allar aðstæður,“ sagði Ólafur.
Eins og sjá má á myndunum eru tarfarnir vel hyrndir en það er hluti af veiðinni að finna slíka tarfa. Veiði á kúm hefst svo 1. ágúst.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |