Einni þekktustu laxveiðiá Noregs, Gaula hefur verið lokað tímabundið. Ástæðan er vatnsleysi og mikil hitabylgja. Þetta var tilkynnt í gær og tók lokunin gildi á hádegi í dag og mun gilda þar til aðstæður batna. Hitastig Gaula er hátt og veðurspá gerir ráð fyrir meiri hitum og nánast ógerningur er talið að lax sem er veiddur og sleppt á nýjan leik, lifi það af.
Norski fiskifræðingurinn Eva B. Thorstad sagði í tísti í dag að þetta væri afar óvenjulegt. Ástæðan væri hár hiti og vatnsleysi vegna hversu veðurlag hefur verið þurrt og heitt lengi. Í dag er hitastig Gaula 20 gráður og lofthiti 32. Búist er við meiri hlýindum og hitamet hafa verið að falla. Gaula er ein af stærstu laxveiðiám Noregs og hefur lax aðgang að 212 kílómetra svæði. Í fyrra veiddust þar 5.100 laxar og var sleppihlutfall 62%. Eva segir einnig að ár á stórum svæðum í bæði Noregi og Svíþjóð séu vatnslitar og afar heitar. Hún segir að komið hafi til lokana í stöku ám í Noregi áður en aldrei jafn mikið og núna. Þá berast einnig fréttir af lokunum á veiðisvæðum í Danmörku sökum veðuráhrifa. Þetta er annað árið í röð sem Gaula lokar tímabundið vegna þurrka og hita. Í fyrra gerðist það 28. júlí.
Ragna Sif Þórsdóttir, hönnuður og veiðikona var á leið til Noregs í fyrramálið og átti að hefja veiðar í laxveiðiá í ánni Stjordal á Fossen svæðinu. Þriggja daga veiðitúr var framundan og fékk hún upplýsingar í gær um að ánni hefði verið lokað tímabundið vegna þurrka og mikilla hita. „Auðvitað er ég hundsvekkt. En það er svo sem ekkert að gera við þessu. Bara sýnir okkur hversu slæmt ástandið er. Þeir voru búnir að senda okkur tölvupóst að koma bara með einhendur og sleppa tvíhendunum. Vanalega er þessi á veidd með 14 feta tvíhendum að minnsta kosti.“
Þetta er annað árið í röð sem laxveiðiár í Skandinavíu verða illa úti í miklum hitum og þurrkum. Minnir óneitanlega á það ástand sem ríkir á Vestur hluta Íslands í sumar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |