Stórfiskur sem kom á land í Þverá í Borgarfirði í gærkvöldi gladdi mikið og var tilbreyting frá því erfiða ástandi sem þar hefur ríkt í allt sumar.
Það var breski veiðimaðurinn Alan Smith sem landaði 102 cm hæng úr Klapparfljóti undir dyggri handleiðslu Aðalsteins Péturssonar leiðsögumanns. Tók sá stóri litla Hairy Mary flugu númer 14.
Er þetta kærkomin tilbreyting frá því vatns og fiskleysi sem einkennt hefur sumarið í Borgarfirðinum að sögn Ingólfs Ásgeirssonar eins af leigutökum árinnar. Talsvert er þó af fiski á nokkrum stöðum í ánni þar sem laxinn hefur bunkast upp og leitað skjóls á dýpstu staðina, einkum þó í Kaðalstaðahyl og Klapparfljóti.
Rétt tæpir 400 laxar eru komnir á land úr Þverá/Kjarrá það sem af er sumri sem er einungis 20% af veiðinni á sama tíma fyrir ári þegar rúmir 1800 laxar voru komnir á land. Er þetta því eitt lélegasta veiðiár sem menn þekkja frá því stangveiðar hófust í ánni.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |