Netaveiði fremur slök í Ölfusá

Vitjað um net í Ölfusá.
Vitjað um net í Ölfusá. Mynd/mbl.is

Að  sögn Atla Gunn­ars­son­ar sem heldur utan um neta­veiðar á laxi fyr­ir landi Sel­foss við Ölfusá, hef­ur veiðin í net­in í sum­ar verið frekar slök samanborið við fyrri ár. 

Atli annast neta­lagn­ir fyr­ir Sel­foss­bænd­ur sem hafa heim­ild til að hafa tvær lagn­ir á eystri bakk­an­um, eina beint neðan við Ölfusár­brúna og aðra á eyrinni skammt fyr­ir neðan Sel­foss­kirkju, á móts við veiðisvæði Stang­veiðifé­lags Sel­foss. 

Kvaðst Atli ekki hafa getað sinnt lögninni neðan við brúna sem skyldi í sumar vegna mannskapsleysis, en tvo fullfríska karlmenn þyrfti til að sinna henni og vitja um hana á þriggja tíma fresti. Lögnin á eyrinni fyrir neðan kirkjuna væri hins vegar einfaldari og einn maður gæti hæglega sinnt henni og hún hefði því verið fullnýtt í sumar.

Lögnin við brúna væri mun betri og nefndi Atli sem dæmi að 10. júlí hefðu komið 14 laxar allan daginn í lögninni á eyrinni fyrir neðan kirkjuna, á meðan 13 laxar komu í lögninni við brúna eftir einungis þrjá klukkutíma. 

Ljóst væri að samdrátturinn í veiðinni væri talsverður samanborðið við fyrri ár, en hann kvaðst ekki hafa tölur um það á hraðbergi. Veiðin hefði samt farið þokkalega af stað í byrjun en svo hefði hún dvínað og áberandi væri að minna væri af smálaxi en í meðalári.

Fram kom hjá Atla að hver einasti lax væri vigtaður sem kæmi í netin og væri meðalþyngdin í sumar aðeins meiri en í fyrra, 2,58 kíló samanborðið við 2,53 kíló allt sumrið 2018.

Atli sagðist helst hallast að kenningu Bjarna Júlíussonar, fyrrverandi formanns Stangveiðifélags Reykjavíkur, að orsök hinnar slöku laxagengdar í sumar mætti rekja til þess hve lítil og léleg hrygning hafi orðið hjá árganginum sem gekk 2014 í árnar. 

Þótt viðvarandi þurrkar eins og í sumar hefðu í sjálfu sér lítil áhrif á laxagengd í Ölfusá hefði hann aldrei orðið eins mikið var við særða laxa í netunum eftir veiðibjöllu eins og nú í sumar. Það mætti rekja til þess að neðar í Ölfusánni þar sem hún breiðir mikið úr sér væri hún talsvert grunn á stöku stað og þar sæti veiðibjallan fyrir laxinum.

Varðandi þær umræður hvort hætta bæri netaveiðum á laxi sagði Atli að um væri að ræða hlunnindi sem bundin væru eignarétti og útilokað að rífa slíkt af mönnum án bóta. Hann sagðist í sjálfu sér vera til viðræðna um að leigja út þessar netalagnir en enginn hefði gefið sig á tal við hann varðandi eitthvað slíkt.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert