Ágæt veiði er í Jökulsá á Dal um þessar mundir og eru öflugar smálaxagöngur að koma inn. Þá var besti veiðidagur sumarsins á miðvikudaginn þegar að 23 laxar komu á land.
Samkvæmt Veiðiþjónustunni Strengir sem annast ræktun árinnar og heldur þar utan um veiðina, þá gaf síðasta vika um 100 laxa sem er frábær veiði miðað við ástandið í mörgum laxveiðiám landsins þessa daganna. Um 240 laxar eru komnir á land af Jöklusvæðinu í heildina þegar mánuði er lokið af tímabilinu.
Jöklusvæðið er veitt með sex til átta stöngum og gaf 487 laxa sumarið 2018 sem líklega hefði verið mun meira ef Jökla sjálf hafi ekki farið á yfirfall snemma í ágúst, en oftast gerist það í byrjun september. Mikið af smálaxi gekk í ána 2018 og voru horfur fyrir 2019 því nokkuð góðar hvað stórlaxinn varðar. Nú virðist sem smálaxinn sé einnig skila sér vel í ána.
Eftir að Kárahnjúkavirkjun komst á stokk fer megnið af jökulvatninu um jarðgöng yfir í Fljótsdal þar sem það rennur út í Lagarfljót og þaðan til sjávar. Er Jökla sjálf því tær bergvatnsá þar til Hálslón er orðið full og þá fer áin á svokallað yfirfall og jökulvatn fossar um yfirföll stíflumannvirkjanna.
Þá er greint frá því að Hrútafjarðará er komin í 100 laxa en eitt holl síðustu viku hitti á smá rigningu og það var eins og við manninn mælt að 33 löxum var landað á tveimur dögum og var það í bland smálax og stórlax.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |