Að sögn Jóhanns Vals Stefnissonar sem er einn af leigutökum af Sæmundará í Skagafirði þá kom mikill kippur þar í veiðina í kjölfar á mikilli rigningartíð síðustu daga.
Jóhann sagði í samtali að menn hafi verið setja í mikið af stórfiski síðustu daga og hafi margir þeirra sloppið eftir langa baráttu. Kvaðst Jóhann sjálfur hafa sett í einn slíkan dreka í Neðri-Varmalandshyl og stóð sú barátta í rúman klukkutíma og endaði með að sá stóri hann sleit tauminn.
Arnar svipađur bardagi var í svokölluðum Melshyl og var þar gríðarlegur risi á ferðinni sem stökk eftir mikla baráttu og fékk veiðikonan sem hélt á stönginni báða krókana upprétta til baka. Var kíkt ofan í hylinn að lokum og sáu menn 50 til 60 laxa liggja þar í hnapp.
Jón sagði að sennilega væru um 100 laxar komnir á land en veiðin hefði farið rólega af stað vegna vatnsleysis. Núna hefur vatnsmagnið sennilega tífaldast og fiskur að hellast inn í ána og hafa menn orðið varir við talsvert af lúsugum smálaxi.
Veitt er á tvær til þrjár stangir í Sæmundará og er veiðisvæðið um 17 kílómetrar, en 302 laxar veiddust í ánni sumarið 2018.
Að sögn Jóhanns hefur mikið ræktunarstarf verið unnið í rúma tvo áratugi en þá var orðin sáralítil veiði í ánni vegna ofveiði. Er áin fiskgeng að Gýgjarfossi, en þar fyrir ofan er langt svæði þar sem botngerð er talin henta ágætlega sem búsvæði fyrir laxaseiði. Því hefur síðastliðin ár á hverjum hausti verið sleppt nokkrum tugum para af löxum til nýtingar á þessum svæðum í samstarfi við fiskifræðinga í Háskólanum á Hólum. Er sérstök girðing strengd yfir ána fyrir ofan fossinn til að koma í veg fyrir að laxarnir leiti aftur niður ána, en ekki er talið að Gýgjarfoss valdi afföllum á niðurgönguseiðum.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |