Stærsti lax sumarsins kom á land í Ytri Rangá í morgun og landaði sami veiðimaður að auki risasjóbirtingi á sömu vaktinni.
Það var Axel Wimmer sem setti í stórlaxinn á svokölluðum Rangárflúðum og eftir langa baráttu var 104 cm hæng landað í kvíslinni við hliðina á. Tók sá stóri rauðan Frigga. Fyrr um morguninn hafði Axel landað 90 cm sjóbirtingi í Línustreng sem tók litla Froden túpu.
Þetta er þó ekki stærsti sjóbirtingurinn sem veiðst hefur þar í sumar því þann 12. júlí fékk Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari einn 94 cm langan einnig í Línustreng á Sunray túpu.
Fyrir nokkrum árum tóku leigutakar upp sleppiskyldu á sjóbirtingi og hafa menn veitt því athygli að mun meira er nú af stórum birtingum en áður sem ganga aftur og aftur í ána.
Laxveiðin í Ytri Rangá hefur verið heldur rísandi að undanförnu og eru rúmlega þúsund laxar komnir á land í heildina, en í síðustu viku veiddust þar 217 laxar. Heildarveiðin hefur oft verið betri í Ytri Rangá og á hún nokkuð langt í að ná nágrönnu sinni í Eystri Rangá sem er komin í nálægt 2500 laxa.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |