Vikulegur listi Landssambands veiðifélaga yfir laxveiði í ám landsins var birtur seint í gærkvöldi og gildir fyrir vikuna 14. til 21. ágúst. Eins og verið hefur í allt sumar er Eystri-Rangá langefst af ánum hvað heildarveiði varðar. Selá í Vopnafirði, Ytri-Rangá og Miðfjarðará eru í næstu sætum og munar talsvert litlu á þeim.
Ástandið hefur lítið lagast á Vesturlandi og veiði þar almennt döpur og margar þekktar veiðiár neðarlega á þessum lista. Engin af veiðiánum í 10 efstu sætunum eru með betri veiði en á sama tíma í fyrra nema Selá.
Hér er listinn yfir 10 efstu árnar eins og staðan er þessa vikuna.
1. Eystri-Rangá 2.556 laxar – vikuveiði 240 laxar (3.060 laxar á sama tíma 2018)
2. Selá í Vopnafirði 1.167 laxar – vikuveiði 165 laxar ( 1.111 laxar á sama tíma 2018)
3. Ytri-Rangá 1.106 laxar – vikuveiði 112 laxar (2.556 á sama tíma 2018)
4. Miðfjarðará 1.091 lax – vikuveiði 105 laxar (2.039 á sama tíma 2018)
5. Urriðafoss í Þjórsá 729 laxar – vikuveiði 14 laxar (1.211 á sama tíma 2018)
6. Þverá/Kjarrá 651 lax – vikuveiði 119 laxar (2.271 lax á sama tíma 2018)
7. Laxá á Ásum 566 laxar – vikuveiði 64 laxar (565 laxar á sama tíma 2018)
8. Blanda 572 lax – vikuveiði 11 laxar (852 laxar á sama tíma 2018)
9. Hofsá í Vopnafirði 533 laxar – vikuveiði 73 laxar (570 laxar á sama tíma 2018)
10. Haffjarðará 487 laxar – vikuveiði 42 laxar (1.353 laxar á sama tíma 2018)
Nánar má kynna sér þessar upplýsingar hér.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |