Í miklum norðanhvelli og sandbyl síðastliðinn laugardag veiddist stærsti urriði sumarsins úr Veiðivötnum og jafnframt sá næststærsti sem veiðst hefur á stöng í vötnunum frá því skipulegar skráningar hófust. Stangveiðitímabilinu er nú lokið og netaveiðar taka við.
Það var Friðrik Þórarinsson sem þann 17. ágúst fékk þennan stærsta fisk sumarsin á beitu úr Grænavatni. Hann var veginn 8,02 kíló (16,06 pund) og mældur 74 cm að lengd og var belgmikill því hann mældist 79 cm að ummáli. Þetta er annar þyngsti fiskur sem veiðst hefur á stöng í Veiðivötnum.
Stangveiðitímabilinu lauk í Veiðivötnum á miðvikudaginn og tekur við netaveiðitími landeigenda sem stendur næstu þrjár til fjórar vikur.
Alls fengust 20.393 fiskar á stöng í sumar, 9659 urriðar og 10.734 bleikjur. Þetta er svipaður afli á stangveiðitímanum og undanfarin ár að er fram kemur í samantekt frá veiðivörðum við vötnin.
Veiðin glæddist mikið í síðustu veiðivikunni frá illviðravikunni á undan. Alls komu 1196 fiskar á land þá vikuna, þar af 640 urriðar úr Litlasjó og 157 úr Hraunvötnum. Þetta voru jafnframt aflahæstu vötnin vikunnar.
Flestir fiskar hafa komið á land úr Snjóölduvatni, 5649 á þessu veiðitímabili og úr Litlasjó hafa fengist 4502 fiskar.
Fleiri stórir fiskar fengust úr Grænavatni í þessari síðustu viku, tveir 14 til 15 punda auk þessa stóra sem Friðrik fékk. Meðalþyngd afla úr vötnunum er nú 1,34 pund en mesta meðalþyngd var í Grænavatni 2,97 pund. Einnig var góð meðalþyngd úr Ónýtavatni fremra, Arnarpolli, Hraunvötnum og Litlasjó.
Nánar má kynna sér þessa samantekt hér.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |