Stærsti laxinn úr Víðidalsá í sumar

Landsliðskokkurinn Axel Björn Clausen með stærsta lax sem veiðst hefur …
Landsliðskokkurinn Axel Björn Clausen með stærsta lax sem veiðst hefur í Víðidalsá í sumar. 104 sentímetrar og tók í Dalsárósi. Ljósmynd/JH

Krókódílatíminn er runninn upp. Það er sá tími þegar stóru hængarnir verða árásagjarnir og eiga til að taka flugu veiðimanna, sem fram til þessa hefur vakið litla athygli. Landsliðskokkurinn Axel Björn Clausen upplifði þetta með skemmtilegum hætti í Víðidalsá rétt áðan.

„Við komum í Dalsárós og vissum af stórum fiskum. Ég ákvað eftir smátíma að setja undir Svarta-Pétur, sem hefur verið svona leiðsögumannafluga í Vatnsdal og víðar. Ég strippaði hana frekar hratt og þetta skrímsli negldi hana,“ sagði kátur Axel Björn í samtali við Sporðaköst rétt eftir að hafa sleppt fiskinum. Þetta var hængur og mældist hann 104 sentímetrar. Það er skondin tilviljun þar sem Jóhann Hafnfjörð Rafnsson, rekstraraðili Víðidalsár, landaði í morgun 104 sentímetra hæng í Laxá í Aðaldal á Nessvæðinu.

Allar pósur voru teknar með þennan flotta fisk. Krókurinn er …
Allar pósur voru teknar með þennan flotta fisk. Krókurinn er orðinn stór og öflugur. Sannkallaður krókódíll, eða draugur eins og stóru hængarnir eru gjarnan kallaðir í Víðidal. Ljósmynd/JH

Axel Björn segir baráttuna hafa staðið í tuttugu mínútur og honum til aðstoðar var Jóhannes Hinriksson sem annast Ytri-Rangá.

„Þetta er stærsti lax sem ég hef landað,“ sagði landsliðskokkurinn. „Áður átti ég stærst 102 sentímetra og hann veiddist í Nesi. Sá lax var reyndar þykkari. En hausinn á þessum maður. Úff.“

Þetta er stærsti lax veiddur í Víðidal í sumar, en fram til þessa hefur sá stærsti verið 102 sentímetrar. Nokkrir laxar 100 og 101 sentímetri hafa veiðst. Vitað er um stærri fiska og munu veiðimenn spreyta sig við þá á næstu dögum og vikum.

Það er ekki hægt að birta nógu margar myndir af …
Það er ekki hægt að birta nógu margar myndir af svona fallegum fiski. Brosið á Axel segir alla söguna. Ljósmynd/JH
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert