Veiði lauk í Laxá á Ásum á hádegi í dag. Það er óhætt að segja að veiðinni hafi lokið með stæl. Miklir vatnavextir eru nyrðra eins og víða á landinu og var Laxá orðin nánast óveiðanleg fyrir neðan veiðistaðinn Tuma.
Veiðimenn sem voru að veiða voru að hugsa um að skella sér í bæinn í gær en Sturla staðarhaldari hvatti þá til að taka morgunvaktina. Hann sagði við þá: „Þið farið upp í Langhyl og hann er allur við bílastæðið.“ Þeir létu til leiðast og lentu í bingói eins og þegar Ásarnir voru upp á sitt besta á árum áður. „Þeir lönduðu þrjátíu löxum og höfðu ekki tölu á hversu marga þeir misstu eða settu í og fengu tog. Þetta var allt í Langhyl og einmitt við bílastæðið. Það var ótrúlegt magn af fiski á brotinu,“ sagði Sturla Birgisson í samtali við Sporðaköst keyrandi suður að lokinni sumarvertíðinni 2019.
Stulli var sjálfur að veiða í morgun og fékk hann átta og þriðja stöngin landaði sex. „Síðustu fjórir daga hafa verið ótrúlega flottir og búið að landa yfir sextíu löxum á þeim tíma. Þetta minnti á gamla tíma í Ásunum.“
Með þessu er ljóst að Ásarnir fara yfir átta hundruð fiska og fátt sem mun breyta því að hún verði sjötta aflahæsta áin á landinu þetta sumarið og líkast til með mestu veiði per stöng. En þeir útreikningar bíða betri tíma.
Tveir laxar veiddust í Ásunum í sumar sem voru yfir hundrað sentímetrar. Annar í Svartabakka efri og var það um miðjan ágúst. Hinn veiddist í þessum mánuði í Langhyl.
„Já, nú er búið að loka og ég á suðurleið,“ sagði Stulli að lokum og langri törn fyrir norðan lokið.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |