Börn, bugaður veiðimaður og fegurð

Bugaður veiðimaður. Þessi er frá Laxá í Refasveit. Lítið var …
Bugaður veiðimaður. Þessi er frá Laxá í Refasveit. Lítið var að gerast og þrepin 89 taka á í furllum skrúða. Ljósmynd/Helga Gísladóttir

Veiðifólk er upp til hópa miklir myndasmiðir. Sumir vilja jafnvel meina að í stað þess að tala um veiða/sleppa eigi að tala um veiða/mynda/sleppa. Hvaða skoðun sem menn hafa á því er gaman að sjá allar þær flottu veiðimyndir sem hafa streymt inn til okkar í samkeppni Sporðakasta og Veiðihornsins í Síðumúla um bestu veiðimyndina sumarið 2019.

Hér ætlum við að birta nokkrar og fylgja með sögur með þeim flestum. Fyrst er til að taka myndina sem Helga Gísladóttir sendi okkur af buguðum veiðimanni í Laxá í Refasveit. Hann var að koma upp úr gljúfrinu og tröppurnar eru hvorki fleiri né færri en 89. Helga sagði í texta með myndinni að hún héti Bugaður veiðimaður. „Það var ekkert búið að vera að gerast. Veiðimaður er Valur Hentze. 89 tröppur í fullum skrúða taka á.“

Næst er það mynd frá Faxa í Tungufljóti. Þar var ágæt veiði í sumar. Fyrri myndin sem við birtum hér, eftir Bjarka Tómasson sýnir vel fallega fossinn Faxa. Hann skrifaði þennan texta með: „Þessi mynd er úr fyrsta túr bróður míns þar sem fyrirkomulagið er fly only. Stuttu eftir að þessi mynd er tekin landaði hann svo sínum fyrsta flugulaxi í stórbrotnu landslagi. Áður en við vissum af var fullt af erlendum ferðamönnum mætt við bakkann og fögnuðu þeir gríðarlega, þeir skildu samt ekki alveg af hverju við slepptum fiskinum aftur, það fannst þeim alveg stórskrítið. Myndin af fossinum er fyrir keppnina en hin myndin er til sönnunar um fiskinn.“

Fossinn Faxi í Tungufljóti er fagur. Hann hefur líka reynst …
Fossinn Faxi í Tungufljóti er fagur. Hann hefur líka reynst góður veiðistaður í sumar. LjÓsmynd/Bjarki Tómasson

Bróðir Bjarka sem landaði sínum fyrsta flugulaxi, heitir Kári Tómasson og laxinn hans tók bláan Sunray og mældist þessi hrygna 82 sentímetrar.

Með fyrsta flugulaxinn. Kári fékk þennan neðan við Faxa.
Með fyrsta flugulaxinn. Kári fékk þennan neðan við Faxa. Ljósmynd/Bjarki Tómasson

Svo er það sannkölluð sumarstemma frá Norðurá. Hann Sigurður Skúli Bárðarson, leiðsögumaður við Norðurá, sendi okkur þessa og skrifaði með. „Sendi hér mynd sem er dæmigerð fyrir líðandi veiðisumar, sól, logn og skortur á vatni.  Réttarhylur. Grábrók og Hraunsnefsöxl í bakgrunni.“ Þetta er enn ein myndin sem okkur berst sem er dæmigerð fyrir sumarið. Gaman að sjá hvað er hægt að grípa oft eitt augnablik sem getur lýst heilu sumri.

Táknræn mynd fyrir sumarið. Sól og vatnsleysi í Norðurá.
Táknræn mynd fyrir sumarið. Sól og vatnsleysi í Norðurá. Ljósmynd/Sigurður Skúli Bárðarson

 

Loks er það veiðimaður sem lætur ekki barneignir stöðva sig. Hér er veitt í Grafará í Skagafirði. Myndasmiður er Óli Foss og með í för er sex vikna sonur hans, Adrían Atlas Foss.

Flugustöngin í annari og sonurinn, sex vikna í hinni. Hér …
Flugustöngin í annari og sonurinn, sex vikna í hinni. Hér er veiðidellan í hámarki. Ljósmynd/Ólafur Foss
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert