Vinkonurnar og veiðifélagarnir Inga Lind Karlsdóttir og Áslaug Hulda Jónsdóttir eru að veiða í Tungulæk. Það hljóp heldur betur á snærið hjá þeim í gær á fyrstu vaktinni. „Við erum búnar að vera hálfan dag og erum í miklu hamingjukasti. Við héldum að veiðisumarið væri búið,“ sagði Inga Lind í samtali við Sporðaköst.
Þær voru í hörkuveiði í gær og lönduðu þónokkrum birtingum. Inga Lind setti svo í og landaði 94 sentímetra sjóbirtingi. „Hann tók bleikan Nobbler og rétt í þann mund sem hann datt í háfinn brotnaði krókurinn.“
Þetta er stærsti sjóbirtingurinn sem landað hefur verið í Tungulæk í haust. Inga Lind og Áslaug voru virkilega sáttar með veiðina og af öllum fiskunum sem landað hefur verið var sá minnsti 74 sentímetrar.
„Það er svo gaman að fá svona bónus. Við héldum að veiðisumarið væri búið en svo bættum við stuttum túr við með vini okkar Theodóri Erlingssyni og vá, við sjáum ekki eftir því.“
Mikið vatn er í Tungulæknum en aðstæður góðar og áin tær.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |