Félagsfundur í Veiðifélagi Blöndu og Svartár samþykkti í gær samning við hlutafélagið Starir ehf. Samningurinn gildir til fimm ára og felur í sér mikla breytingar á veiðifyrirkomulagi, sérstaklega í Blöndu.
Nú verður einungis leyft að veiða á flugu í Blöndu og kvóti fiska sem má drepa á dag verður minnkaður mjög mikið.
Ingólfur Ásgeirsson hjá Störum ehf. sagði í samtali við Sporðaköst í morgun að hann væri mjög spenntur fyrir þessu verkefni. „Við erum búnir að undirbúa þetta vandlega og höfum væntingar um að við getum snúið þessu við. Það er hins vegar ljóst að það getur tekið nokkur ár að rífa þetta upp á nýjan leik,“ sagði Ingólfur.
Forsaga þessa máls er að Lax-á ehf. sagði óvænt upp samningi sínum við Veiðifélagið, í ágúst. Eitt ár var eftir af samningnum og þurftu bændur því að hafa snör handtök til að tryggja nýjan samstarfsaðila.
Ingólfur Ásgeirsson segir að þegar sé hafin sala á veiðileyfum og gangi hún vel.
Þær breytingar sem boðaðar hafa verið felast meðal annars í því að svæði eitt, tvö og þrjú verða seld saman yfir mitt sumarið að hluta, en neðsta svæðið sér fyrsta mánuðinn. Stöngum verður fækkað og stefnt er á lækkun á verði veiðileyfa, að sögn Ingólfs Ásgeirssonar.
Starir ehf. eru umsvifamikið félag á veiðileyfamarkaði og leigja meðal annars Þverá/Kjarrá og Víðidalsá svo einhverjar séu nefndar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |