Myndir frá veiðifólki, frá liðnu sumri streyma inn og ljóst að dómnefndar bíður erfitt hlutverk. Hér eru nokkrar skemmtilegar myndir sem hafa borist í samkeppni Sporðakasta og Veiðihornsins um bestu veiðimyndina 2019. Verðlaunin eru ekki af verri endanum eða Sage X stöng frá Veiðihorninu að verðmæti 129.900 kr. Skilafrestur er til 10. október, þannig að nægur tími er til stefnu. Sendið myndir á netfangið eggertskula@mbl.is.
Fyrsta myndin sem við birtum hér er mynd sem Jakob Sindri Þórsson sendi inn. Myndasmiður er Arnar Sveinbjörnsson. Jakob Sindri lét þessa orðsendingu fylgja með.
Inga Lind Karlsdóttir sendi inn mjög skemmtilega mynd af dóttur sinni að slást við lax í Kjarrá, á veiðistaðnum Hellgate. Eins og myndin ber með sér er sú stutta afar ákveðin. Inga Lind sendi þennan texta með.
„Hér liggur Jóhanna Hildur, 11 ára dóttir mín, á bökkum Kjarrár í sumar, dottin í grjótið eftir baráttu við langþráðan lax í vatnslítilli ánni, en alls ekki af baki dottin! Hún sleppir ekki takinu, stöngin uppi og allt í gangi - og laxinn samt kominn á land. Jóhanna er mjög ákveðinn veiðimaður sem gefst aldrei upp.“
Þá er það mynd af ungum og efnilegum veiðimanni með sinn stærsta fisk, til þessa. Inn sendi myndina Jón Egill Sveinsson og texta með.
„Hér eru mynd af efnilegum 11 ára veiðimanni, Sveini Jónssyni með sjóbleikju sem hann fékk í lok júlí í Fjarðará. Hann kastaði lítilli púpu andstreymis með tökuvara og hann var á í öðru kasti. Stöngin 9 feta Sage X 5. Bleikjan var 68 cm og stærsti fiskur sem gutti hefur sett í og landað - enda kátur að sjá.“
Þessi er frá Helluvatni og fangar augnablikið þegar fallegur urriði hreinsar sig. Eiður Kristjánsson sendi þessa mynd. „Myndin er tekin í Helluvatni í vor. Þetta reyndist vera 57 cm urriði sem tók fluguna Burton.“
Síðasta myndin sem við birtum í dag er frá fallegum veiðistað í Stóru-Laxá. Bergur Árni sendi myndina og útskýringu.
„Myndin er tekin í Stóru-Laxá á svæði fjögur. Þetta er veiðistaðurinn Neðri nálarhylur og veiðimaður er Nökkvi Svavarsson að glíma við 79 cm hrygnu sem náðist á land.“
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |