Enn eru fimm dagar til stefnu til að skila inn myndum í samkeppni Sporðakasta og Veiðihornsins um bestu veiðimynd sumarsins. Þátttakan hefur verið mjög góð og er það ánægjuefni. Lokafrestur til að skila inn myndum er á fimmtudag, fyrir miðnætti. Verðlaunin eru frá Veiðihorninu og eru Sage X-flugustöng að verðmæti 129.900 kr.
Þeir sem vilja senda inn myndir geta sent á eggertskula@mbl.is. Muna þarf að tilgreina veiðistað, veiðimann og fleira sem tengist myndinni. Veiðihornið áskilur sér rétt til að nota þær myndir sem sendar eru inn í tengslum við markaðsefni sitt.
Við ætlum að birta núna nokkrar myndir, af handahófi, af þeim sem hafa borist. Þær koma víða að og eru ákaflega ólíkar sem gefur samkeppninni meira vægi. Fyrsta myndin sem birtist var mynd frá Bjarna Bjarkasyni sem tekin var í Jöklu í sumar. Veiðimaður er Jóhann Jóhannsson og er að kveðja lax sem hann veiddi og sleppti.
Hér er svo falleg sumarmynd frá Litluá í Kelduhverfi. Þessa mynd tók Sigurður Hauksson klukkan tvö eftir miðnætti í júní í sumar. Hver saknar ekki þessara stunda, þegar skammdegið er að taka yfirhöndina?
Svo er hér mynd af Árna Elvari H. Guðjohnsen, sem tekin var í Korpu eða Úlfarsá í sumar. Með fylgdi saga frá Árna Elvari. „Ég fór í Korpu 20. september í heilan dag með fyrrum vinnufélaga pabba míns og var með eina stöng. Ég byrjaði á stað sem heitir Stíflan. Þar settum við í fisk í þriðja kasti um morguninn, misstum þann fisk en settum svo í annan skömmu seinna og var það 60 sm lax. Strax í næsta kasti kom annar fiskur á og það var 52 sentimetra fiskur. Þriðji laxinn kom skömmu síðar og slepptum við honum. Þetta var allt á átta feta fjarka og flugan var Munroe Killer þríkrækja nr. 12.“
Það er skemmst frá því að segja að Árni Elvar setti svo í enn einn laxinn og landaði á Stíflunni síðar um daginn. Og eins og hann skrifaði sjálfur. „Geggjaður dagur, takk fyrir mig.“
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |