Leirvogsá, sem Lax-á ehf hefur verið með á leigu er á lausu. Árni Baldursson staðfesti í samtali við Sporðaköst að hann hefði nýtt sér ákvæði í samningi við Veiðifélag Leirvogsár og sagt sig frá leigunni. Lax-á hefur verið með Leirvogsá á leigu í þrjú ár og þann tíma segir Árni að áin hafi átt undir högg að sækja. „Það hafa verið vandræði með vatnsbúskap og áin verið vatnslaus. Þá hefur vantað fisk í hana og þetta hefur einfaldlega verið mjög erfitt þessi þrjú ár sem við vorum með hana á leigu.“
Þetta er þriðja vatnasvæðið sem Árni og Lax-á losa sig við á stuttum tíma. Fyrst var það Blanda þar sem Árni gekk út úr samningi þann 1. ágúst. Í gær sögðum við frá því að veiðileyfasalinn Roxtons hefði gengið inn í samning hans um Eystri-Rangá og keypt af félaginu veiðihúsið. Nú er það Leirvogsá. Árni sagði í samtali við Sporðaköst að hann hefð nýtt sér ákvæði í samningnum til að segja upp.
Heimildir Sporðakasta herma að SVFR, eða Stangaveiðifélag Reykjavíkur sé að ganga frá samningi um Leirvogsá og það á „gamla verðinu“ sem þýðir um 30% lækkun. Vonandi skilar sú lækkun sér til veiðimanna.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |