Veiddu vel í vetrarríki fyrir norðan

Ungir og upprennandi veiðimenn. Ívar Rúnarsson 11 ára háfar fyrir …
Ungir og upprennandi veiðimenn. Ívar Rúnarsson 11 ára háfar fyrir Eyþór Rúnarson 14 ára. Þessi fiskur mældist 75 sentímetrar. Ljósmynd/Aðsend

Harðduglegir veiðimenn opnuðu Eyjafjarðará og Brunná fyrir norðan í gær. Veiðin var með ágætum í báðum ám. Þannig lönduðu veiðimenn í Eyjafjarðará 21 fiski. Var það mest sjóbirtingur og staðbundinn urriði en einnig veiddust nokkrar bleikjur. Ekki eru margir dagar síðan Eyjafjarðará var ísilögð og mældist vatnshiti aðeins ein gráða þegar menn voru við veiðar í gær.

Stefán Hrafnsson landaði þessum glæsilega fiski upp á svæði þrjú …
Stefán Hrafnsson landaði þessum glæsilega fiski upp á svæði þrjú í Eyjafjarðará í gær. Ljósmynd/Aðsend

Töluvert var um væna sjóbirtinga og sá stærsti var hvorki meira né minna en 88 sentímetrar sem er sannkölluð sleggja. Sá fiskur tók hálftommu Sunray á Merkigilsbreiðu.

Samkvæmt rafrænu veiðibókinni fyrir Eyjafjarðará, sem hýst er á veiditorg.is, gaf Merkigilsbreiða flesta fiska. 

Sigmar Pálsson með einn af fyrstu fiskunum sem veiddust í …
Sigmar Pálsson með einn af fyrstu fiskunum sem veiddust í Brunná þetta vorið. Það er ekki fyrir hvern sem er að veiða við þær aðstæður sem boðið var upp á í gær í Brunná. Ljósmynd/Aðsend

Brunná var einnig opnuð í gær og var veðrið þar vægast sagt vont; mikið hvassviðri og kuldi. En Kristinn Þeyr og félagar hörkuðu af sér og uppskáru sextán fiska; tólf birtinga og fjórar bleikjur. Vænir fiskar voru innan um og gáfu hefðbundnar púpur í bland við Zonker flesta fiska.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert