Norðurland hægt og bítandi að koma til

Þeir félagar sem heimsóttu Brunná í gær gerðu góða veiði. …
Þeir félagar sem heimsóttu Brunná í gær gerðu góða veiði. Sérstaklega glæddist þetta eftir að lægði með kvöldinu. Hér er Valdimar H. Valsson (maddicatch á Snapchat.) með fallegan fisk úr Brunná. Ljósmynd/Aðsend

Veiði er að glæðast fyrir norðan í þeim ám sem bjóða upp á vorveiði, bæði í sjóbirtingi og bleikju. Eyjafjarðará er búinn að vera hörkugóð og Litlaá í Kelduhverfi er alltaf mögnuð. Hins vegar hafa aðstæður verið erfiðar fyrir ár eins og Brunná, Mýrarkvísl og Lónsá svo einhverjar séu nefndar.

Matthías Þór Hákonarson leigutaki og leiðsögumaður segir að þetta sé allt hægt og bítandi að komast í rétt horf, eftir erfiðan og mikinn vetur. Hann var með mönnum neðarlega í Brunná í gær og gerðu þeir ágæta veiði þrátt fyrir frekar hryssingslegar aðstæður.

Þar sem Brunná og Sandá mætast voru nokkuð mikil litaskil að sögn Matthíasar, þar voru þeir einmitt að setja í hann og nokkru neðar. „Það lægði þegar leið á daginn og hlýnaði og þá fórum við að sjá hann meira og veiðin glæddist. Við lönduðum tíu á seinni vaktinni.“

Þorsteinn Bachmann veiðimaður og leikari sem lék eina aðalpersónuna í …
Þorsteinn Bachmann veiðimaður og leikari sem lék eina aðalpersónuna í Síðustu veiðiferðinni. Hér er hann með fallega lax úr Mýrarkvísl. Ljósmynd/Aðsend

Matti, eins og hann er kallaður hafði heyrt í mönnum sem voru í Mýrarkvíslinni í gærkvöldi og þeir voru komnir með þrjá fiska. Þá hafði hann einnig heyrt í veiðimanni sem var að veiða Presthvamm og var búinn að ná nokkrum fiskum. „Þetta er allt að detta í gang í rólegheitum hér fyrir norðan.“

Aumingja Steini

Kvikmyndin „Síðasta veiðiferðin,“ var tekin upp í Mýrarkvísl síðastliðið sumar. Sporðaköst hafa dæmt þessa mynd þá fyndnustu sem gerð hefur verið. Þá er ekki verið að einblína á Ísland. Okkur lék forvitni á að vita hvort Matti hefði fengið mikil viðbrögð, verandi leigutaki.

Valdimar með ellidauða birtinginn sem mældist 91 sentímetri.
Valdimar með ellidauða birtinginn sem mældist 91 sentímetri. Ljósmynd/Aðsend

„Já, ég er búin að fá mikil og góð viðbrögð. Fólk hefur verið að stoppa mig á götu úti og tala um myndina. En mér fannst alveg magnað að fylgjast með Steina (Þorsteini Bachmann). Sem er þetta mikla náttúrubarn að þurfa að leika þennan leiðinlega gæja, hann Val. Hann var að engjast að þurfa að leika þessa týpu,“ sagði Matthías í samtali við Sporðaköst. 

Þeir sem ekki fengu tækifæri til að sjá Síðustu veiðiferðina fyrir samkomubann og lokun kvikmyndahúsa ættu að láta það verða sitt fyrsta verk að skella sér í bíó.

Ellidauður birtingur

Þeir Matti og félagar enduðu með sextán fiska þegar dagur var að kveldi kominn. Þeir voru komnir með fimm um kvöldmat en þegar veðrið róaðist fóru hlutirnir að gerast og þeir enduðu með sextán fiska. „Við fundum dauðan sjóbirting á leið okkar um ána. Hann var engin smásmíði eða 91 sentímetri. Það voru engin sár á honum eða neitt sem benti til þess að hann hefði tekið agn. Við dæmdum hann ellidauðan og það er frábært að þessir fiskar fái að deyja úr elli,“ sagði Matti að lokum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert