Fleiri veiðidagar og friðun aflétt?

Fjölgun mælist í rjúpnastofninum í öllum landshlutum nema á Norðurlandi. …
Fjölgun mælist í rjúpnastofninum í öllum landshlutum nema á Norðurlandi. Áki Ármann Jónsson formaður Skotvís telur koma til greina að veiðidögum fjölgi og vill að friðun á SV-horninu verði aflétt. mbl.is/Ingólfur Guðmundsson

Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2020 er lokið. Rjúpum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Norðurlandi en þar var fækkun. Á Suðvesturlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum virðist stofninn vera að ná hámarki og á Austurlandi er rjúpum að fjölga eftir nokkur mögur ár.

Í fréttatilkynningu frá Náttúrufræðistofnun kemur fram að á Norðurlandi er rjúpnastofninn á niðurleið eftir hámark 2018. Hins vegar fjölgaði rjúpum á Suðurlandi eftir mikið fall 2017–2019. Áki Ármann Jónsson er formaður Skotveiðifélags Íslands eða Skotvís. Komu þessar niðurstöður honum á óvart?

„Já og nei. Ég bjóst við fækkun á NA-landi miðað við stöðu rjúpnasveiflunnar en uppsveiflan á Suður-, Austur- og Vesturlandi kom á óvart. Það sem er ánægjulegast er að okkar sýn á veiðistjórnun gekk algerlega upp, fjölgun leyfilegra veiðidaga hafði ekki áhrif á meðalfjölda veiddra fugla né aukna sókn veiðimanna í stofninn,“ sagði Áki Ármann í samtali við Sporðaköst.

Rjúpnastofninn er að nálgast hámark á öllum vesturhluta landsins. Þá …
Rjúpnastofninn er að nálgast hámark á öllum vesturhluta landsins. Þá er aukning á Suðurlandi og einnig Austurlandi, eftir mögur ár. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Þó svo að talningar á vordögum gefi góða niðurstöðu víða um land er enn eftir að taka margt inn í myndina áður en heildarmyndin verður skýr. Þannig segir í fréttatilkynningu Náttúrufræðistofnunar: „Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna nú í sumar. Jafnframt munu þá liggja fyrir útreikningar á afföllum rjúpna 2019 til 2020 og mat á veiði haustið 2019. Þegar þessi gögn eru tilbúin verður hægt að greina stofnbreytingar frekar.“

En hvað segir formaður Skotvís, er ástæða til að fjölga veiðidögum að hans mati í ljósi þessara talninga?

„Þessar niðurstöður eru ánægjulegar og gott innlegg í þá umræðu. Stærð veiðistofns í haust ræðst af viðkomu rjúpunnar yfir sumartímann og fram á haust en viðkoman hefur því miður ekki verið eins góð og fyrrum. Á því finnast engar skýringar í dag en SKOTVÍS hefur bent á að þann þátt þurfi að rannsaka betur.

Áki segir ljóst að sýn Skotvís á veiðistjórnun hafi gengið …
Áki segir ljóst að sýn Skotvís á veiðistjórnun hafi gengið upp og fjölgun veiðidaga hafði ekki áhrif á meðalfjölda veiddra fugla eða ásókn veiðimanna. Ljósmynd/Aðsend

 

En að því gefnu að ekki verði viðkomubrestur hjá rjúpunni í sumar teljum við aukið svigrúm fyrir fjölgun veiðidaga í haust. Þegar opnað var fyrir veiðar 2005 var veiðitímabilið sett á 25. október til 7. desember. Það virkaði alveg þá og væri tilraunarinnar virði að setja slíkt veiðitímabil á núna í haust. Það væri lágmarksáhætta tekin með því.

Einnig viljum við opna aftur fyrir veiðar á friðaða svæðinu á SV-landi. Það svæði var friðað á sínum tíma í rannsóknarskyni en sú rannsókn er löngu búin. Það er mikilvægt að þegar svæði eru tekin frá til friðunar í samstarfi við veiðimenn þá séu þau opnuð aftur þegar rannsókn lýkur. Það eykur tiltrú veiðimanna á rannsóknum og veiðistjórnunaraðgerðum til framtíðar. Samstarf og gagnkvæm virðing veiðimanna, rannsóknaraðila og stjórnsýslu er grunnurinn að veiðistjórnunaraðgerðum til framtíðar í sátt við hagsmunaðila,“ sagði formaður Skotvís. 

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert