Blanda verður óveiðanleg í sumar

Eftir nokkra daga fer Blanda á yfirfall og verður þá …
Eftir nokkra daga fer Blanda á yfirfall og verður þá óveiðanleg það sem eftir lifir sumars. Einar Falur Ingólfsson

Blöndulón er að fyllast og eftir nokkra daga mun Blanda verða óveiðanleg þegar yfirfall úr lóninu byrjar. Landsvirkjun hefur verið í samskiptum við Veiðifélag Blöndu og Svartár vegna málsins og metið stöðuna. Haldi veðurfar áfram á sömu nótum næstu daga má búast við yfirfallinu 10. til 12. júlí en kólni getur yfirfallið frestast til 15. til 18. júlí.

Sigurður Ingi Guðmundsson formaður veiðifélagsins segir þetta kjaftshögg fyrir allt svæðið. Nú liggi fyrir að veiðihúsinu verði lokað og Blanda verði óveiðanleg í sumar, eftir að yfirfallið brestur á.

„Þetta er mjög erfitt ofan í allt annað. Hér eru nýir leigutakar sem eru að byggja upp nýjan hóp viðskiptavina og við höfum breytt reglum og fjárfest í breytingum á veiðihúsi og farið alfarið í fluguveiði. Svo hefur Covid líka haft mikil áhrif,“ sagði Sigurður í samtali við Sporðaköst.

Veiðimenn við Blöndu. Yfirfallið mun gera hana óveiðanlega eftir að …
Veiðimenn við Blöndu. Yfirfallið mun gera hana óveiðanlega eftir að það hefst. Einar Falur Ingólfsson

Fulltrúar veiðifélagsins hafa bent á að hægt væri að opna botnlokur á Blöndulóni og hleypa úr því. Þá myndi lækka í lóninu og yfirfallið frestast og hægt yrði að bjarga hluta sumars fyrir veiðimenn. Sigurður segir að Landsvirkjun hafi hafnað þessu. „Ég hef með eigin augum séð þetta gert, hins vegar kannast Landsvirkjun ekki við að þetta hafi verið gert. Ég man ekki hvaða ár ég sá þetta en varð engu að síður vitni að þessu.“

Sigurður segir að sér hafi komið á óvart að Landsvirkjun sé ekki tilbúin að hleypa úr lóninu. „Þeir eru á fullu að styrkja ímynd sína með því að planta plöntum og styrkja listasýningar en svo kemur þetta ekki til greina,“ sagði Sigurður og viðurkenndi að hann væri hissa á þessari afstöðu Landsvirkjunar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert