Hundrað laxa holl í Miðfirði

Glæsilegur lax úr Miðfirði. Mark P. og Jóhann Birgisson yfirleiðsögumaður …
Glæsilegur lax úr Miðfirði. Mark P. og Jóhann Birgisson yfirleiðsögumaður með 95 sentímetra fisk í Svarthamri í Austurá í Miðfirði. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta hundrað laxa hollið kom í Miðfirði um helgina. Samtals landaði hollið á þremur dögum 102 löxum á tíu stangir. Sérstaka athygli vekur að á laugardag þegar stíf norðanátt stóð allan daginn lönduðu veiðimenn í Miðfirðinum 39 löxum.

Rafn Valur Alfreðsson leigutaki í Miðfirði sagði í samtali við Sporðaköst í dag að töluvert af fiski væri að ganga. Hann nefndi sem dæmi að á svæði tvö í mörgun lönduðu veiðimenn sex löxum og voru þeir allir grálúsugir.

Lola Rose með einn af mörgum sem hún landaði. Lola …
Lola Rose með einn af mörgum sem hún landaði. Lola er fimmtán ára og fékk þennan í Tangastreng í Austurá. Ljósmynd/Aðsend

Miðfjarðará hefur um árabil verið ein af betri náttúrulegu laxveiðiám landsins. Einhvern veginn virðist hún alltaf endurheimta sína laxa þrátt fyrir erfið ár í mörgum ám.

Þrátt fyrir Covid hefur Miðfjarðará náð að halda í sína viðskiptavini og hefur áin verið mönnuð útlendingum að stórum hluta í júlí. Eins og Sporðaköst greindu frá í sumar þá hefur Rafn látið framleiða sitt eigið kampavín og kunna gestir vel að meta það. Menn sem ferðast á þyrlum milli laxveiðiáa kunna að meta svona kræsingar. Veiðiferðir útlendinga til Íslands snúast ekki bara um fjölda laxa. Þetta er ferðaþjónusta af dýrust gerð. Rafn Valur sagði ótrúlega gaman að fá til baka hrós frá viðskiptavinum. Þyrlumennirnir skrifuðu þannig póst eftir ferðina, að þetta væri ótrúlega vel smurð vél í Miðfirðinum. Matur, veiði, leiðsögumenn og náttúra féll allt á einn veg.

Þyrlur og kampavín í Miðfirði. Ekki víst að þetta klikki.
Þyrlur og kampavín í Miðfirði. Ekki víst að þetta klikki. Ljósmynd/Aðsend

Veisla í Vopnafirði

Góður gangur er í veiðinni í Vopnafirði. Þannig skilaði síðasta þriggja daga holl í Hofsá 73 löxum. Selá er einnig að skila ágætri veiði. Miðfjarðará í Bakkafirði er komin í 110 laxa en þar er einungis veitt á tvær stangir. Gísli Ásgeirsson leigutaki í Vopnafirði sagði í samtali við Sporðaköst að svo virtist sem árnar sem Veiðiklúbburinn Strengur væri með á sínum snærum væru í fínu standi.

Í fyrra var Selá með einna bestu meðalveiði per stöng en forvitnilegt verður að sjá hvernig Hofsá kemur út úr þeim útreikningum þar sem áin er að byrja mjög vel og oft er síðsumarið besti tími Hofsár.

Laxinn mættur í Tungufljót

Kristján Páll Rafnsson, einn af leigutökum Tungufljóts í Vestur Skaftafellssýslu segir laxinn kominn í fljótið. Hann fór nýlega til veiða og setti í fjóra laxa og landaði þremur. 

Vestur Skaftafellssýsla er ekta síðsumars svæði, bæði hvað varðar sjóbirting og lax. En hann er mættur í Tungufljótið og það veit á gott þó svo að sú á sé þekktust fyrir sjóbirting.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert