Krúttmolar á veiðislóð

Signý Sóllilja með fallega
Signý Sóllilja með fallega "urra" eins og hún kallaði hann. Pabbi var fastur í drullu á meðan. Ljósmynd/Hrannar Pétursson

Fulltrúar ungu kynslóðarinnar eru fjölmennir í innsendum myndum í veiðisamkeppni Veiðihornsins, Árvakurs og Sporðakasta. Hér birtum við myndir af nokkrum krúttmolum við veiðar í sumar. Greinilegt er að snemma beygist krókurinn hjá þessum krökkum.

Fyrsta myndin er úr Fremri-Laxá. Hana tók pabbinn Hrannar Pétursson. Hann skrifaði póst með myndinni: „Hjálögð er mynd sem fangar vel veiðigleði dóttur minnar, Signýjar Sóllilju Hrannarsdóttur. Allir fiskar eru í hennar huga jafn glæsilegir, stórir sem smáir. Þennan „urra“ veiddi hún alveg sjálf, á meðan pabbinn stóð fastur í drullu rétt hjá og fylgdist með. Tók hvítan nobbler.“

Eyþór Ásgeirsson með einn fallegan úr bæjarlæknum í Hafnarfirði. Amma …
Eyþór Ásgeirsson með einn fallegan úr bæjarlæknum í Hafnarfirði. Amma var sérstaklega kát með þetta. Ljósmynd/Thelma Másdóttir

Næsta mynd er frá henni Thelmu Másdóttur eða ömmu. Hún skrifaði: „Eyþór Ásgeirsson 5 ára að stíga sín fyrstu skref, byrjaði á því að æfa sig með stöngina í bæjarlæknum í Hafnarfirði, þeir hafa nú komið stærri á öngulinn hjá honum eftir þennan :) Amma, Thelma Másdóttir, forfallinn stangveiðimaður :) tók myndina þegar verið var að koma dóttursyninum á bragðið, og nú er ekki aftur snúið :)“ 

Kári og Sigurður veiða í matinn. Spennan leynir sér ekki …
Kári og Sigurður veiða í matinn. Spennan leynir sér ekki og fiskurinn kom á land í góðri samvinnu. Ljósmynd/Garðar Þór Magnússon

Þriðja myndin er af tveimur upprennandi stórveiðimönnum. Garðar Þór Magnússon tók þessa mynd og sendi okkur frásögn. „Hér er spennumynd frá einni skemmtilegustu veiðiferð sumarsins. Bestu vinirnir Kári Garðarsson og Sigurður Ægir Filippusson hittust á Akureyri nú í sumar og fóru í Víkurlax að ná í matinn. Spennan var það rosalega mikil á þessu mómenti að það datt allt í dúnalogn. Og flotið fór á bólakaf.

Baráttan vannst með góðri samvinnu góðra vina :)“
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert