Íslandsmetið í laxveiði á stöng í einni á er frá árinu 2008. Það ár veiddust 14.315 laxar í Ytri-Rangá. Einn af þeim sem man þennan tíma er Jóhannes Hinriksson sem rekur Ytri-Rangá. Hann sagði í samtali við Sporðaköst þegar þetta ber á góma að það sé bara eitt orð sem geti lýst þessu. „Bilun, en hún var skemmtileg. Þetta var svo ótrúlegt að það er varla hægt að ímynda sér þetta nema upplifa það,“ sagði Jóhannes.
Sennilega er gjöfulasta vakt, sem komið hefur í einni laxveiðiá, seinni vaktin 29. ágúst í Ytri. Þann dag voru færðir til bókar, bara eftir seinni vaktina, 303 laxar. Daginn eftir var 459 löxum landað í allri ánni. Daginn eftir, eða þann 31., komu 306 laxar á land.
Annan september veiddust 189 laxar og þann þriðja 158 stykki.
Þrátt fyrir frábært gengi í Eystri-Rangá er ólíklegt að þetta met verði slegið. Raunar hefur Ytri-Rangá átt nokkur mjög góð ár í gegnum tíðina. Eftir metárið kom vertíð upp á 10.779 laxa, eða sumarið 2009. Veiðitímabilið 2015 var mjög gott og skilaði 8.803 löxum. Árið eftir fóru þeir í 9.323.
Það er því ljóst að Ytri-Rangá á þessi met öll enn og verður spennandi að sjá hvort Eystri nær þessum hæðum. En við misstum okkur aðeins hér á síðunni með að veiðin í Eystri væri sú besta á Íslandi, en það er hér með leiðrétt.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |