Fækka stöngum og veiðin eykst

Kátir karlar við Miðfjarðará. Þetta er Elmar með fallega hrygnu …
Kátir karlar við Miðfjarðará. Þetta er Elmar með fallega hrygnu úr Núpsá í Miðfirði, sem hefur verið að gefa ágæta veiði í sumar. Veiðistaður er Neðri-Núpsfoss. Ljósmynd/Aðsend

Það var sameiginleg ákvörðun leigutaka og landeigenda í Miðfirði að fækka stöngum nú síðustu vikur veiðitímans. Eftir að reglur um skimun og sóttkví ferðamanna voru hertar afbókuðu sig margir erlendir veiðimenn. Í ljósi þessa var ákveðið að veiða Miðfjarðarána með sex til átta stöngum það sem lifir veiðitímans. Veitt er til 25. september og að öllu jöfnu væru tíu stangir við veiðar.

Á hádegi í dag lauk þriggja daga holl veiði, þar sem veitt var á átta stangir. Hollið gerði hörkuveiði og landaði 78 löxum. Miðað við stöðuna víða á landinu er það hreint út sagt frábær veiði.

Eduardo með fallega haustfisk úr Kotálum. Hollið gerði fantaveiði. Lönduðu …
Eduardo með fallega haustfisk úr Kotálum. Hollið gerði fantaveiði. Lönduðu 78 löxum. Ljósmynd/Aðsend

Rafn Valur Alfreðsson leigutaki var spurður hvort þetta hefði eitthvað að gera með fækkun stanga. Hann taldi svo ekki vera. „Það rigndi loksins hjá okkur og við vissum að við áttum svolítið inni þegar yrði veðurbreyting. Það er ágætt magn af fiski á vatnasvæðinu. Einna helst er hægt að merkja að minna sé af fiski í Vesturánni,“ sagði Rafn í samtali við Sporðaköst.

Það er svo greinilegt hvað veðurbreytingin hefur gert því vikuveiðin í Miðfirðinum vikuna 19. til 26. ágúst var 81 lax. Hvort framhald verður á þessu kemur í ljós en víst er að menn voru kátir í Miðfirði og höfðu ástæðu til.

Jóhann Birgisson, leiðsögumaður með 95 sentímetra krókódíl úr Austurá í …
Jóhann Birgisson, leiðsögumaður með 95 sentímetra krókódíl úr Austurá í Miðfirði. Veiðistaður er Skiphylur. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert