Nýverið var undirritaður langtíma samningur á milli Veiðifélagsins Hreggnasa annars vegar og Veiðifélags Svalbarðsár hins vegar, um áframhaldandi leigu á Svalbarðsá.
Í fréttatilkynningu sem Hreggnasi sendi frá sér um málið í dag segir, „Hreggnasi ehf hefur komið að leigu Svalbarðsár allt frá árinu 2007. Þá reis nýtt veiðihús við ána. Frá árinu 2009 hefur Svalbarðsá verið veidd undir „veiða og sleppa“ fyrirkomulaginu en við það hafa veiðitölur og seiðavísitala vaxið mjög til hins betra."
Svalbarðsá er án efa meðal bestu laxveiðiáa landsins. Meðalveiði undanfarinna sumra er um 400 laxar, en þar af hefur hlutfall stórlaxa í aflanum verið yfir 60%. Þá hefur meðalveiði á hverja dagsstöng verið með því allra besta sem gerist á landinu.“
Lokatölur í Svalbarðsá í fyrra voru 469 laxar og var áin þann 2. september komin í 322 laxa. Stefnir í meðalár þar eystra.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |