„Enn er mikið eftir af veiðisumrinu“

Norðlingafljótið gaf Kristjáni vel í sumar og veiddi hann þar …
Norðlingafljótið gaf Kristjáni vel í sumar og veiddi hann þar tröllvaxnar bleikjur. Ljósmynd/Aðsend

Við höldum áfram að gera upp veiðisumarið, jafnvel þó svo að því sé alls ekki lokið hjá öllum, til dæmis viðmælanda okkar í dag, sem er Kristján Páll Rafnsson.

„Það er ekki búið hjá mér sumarið fyrr en seint í október og því er loka einkunn ekki komin í hús, af minni hálfu.

Það sem af er tímabilinu hefur verið mjög gott. Marga mjög stóra silunga hef ég dregið víðsvegar um landið og þó nokkra laxa en enga risa þó. 

Vorið kom seint en þegar það kom var urriðaveiðin hjá mér ævintýraleg. Byrjað var í Tungufljótinu og þar gerði ég gott mót í mokveiði. Fiskurinn var blandaður í holdafari þar og var megnið í mjög góðum holdum. Það er hugsanlegt að sumir sjóbirtinganna séu að ganga um miðjan vetur því að þeir voru sumir spikaðir. Marga urriða fékk ég í Þingvallavatni í kringum áttatíu sentímetra og var sá stærsti 84.

Sjóbrirtingsveiðin var góð bæði í vor og einnig í haust.
Sjóbrirtingsveiðin var góð bæði í vor og einnig í haust. Ljósmynd/Aðsend

Sumarveiðin hjá mér var algerlega sturluð. Kaldakvísl og Tungná stóðu fyrir sínu sem og Þingvallavatn og Villingavatn. Það var frekar rólegt í Úlfljótsvatni þetta sumarið einhverra, hluta vegna. Það var eins og bleikjan kæmi ekki almennilega upp á grunnslóðir. Það sem stóð upp úr í miðsumarveiðinni var Norðlingafljótið. Ég fékk eina af stærstu bleikjum sem ég hef veitt en hún var sennilega um átta pund. 

Silfraður úr Soginu. Eina sem vantar upp á að gera …
Silfraður úr Soginu. Eina sem vantar upp á að gera þetta að fullkomnu sumri hjá Kristjáni er lax sem 90+ sentímetrar. Ljósmynd/Aðsend

Laxveiðina stundaði ég eingöngu í Soginu og Tungufljóti í Skaftártungu og gekk bara vel. Mig minnir að sá stærsti hafi verið 81 sentímetrar úr Soginu. Ég missti einn mjög vænan í Soginu og einnig risalax í Tungufljóti. Fljótið er jú þekktast fyrir sjóbirting en töluvert af laxi gengur í það og flestir í ágúst. Nú er sjóbirtingsveiðin á fullu skriði og ég er búinn að fá marga bolta á milli 70 og 80 sentímetra. Tvo risa sem voru 88 og 93 sentímetrar. Eins og staðan er núna þá er einkunnin í 8.5, fyrir sumarið. Ef ég myndi landa laxi í 90+ flokknum þá myndi ég gefa sumrinu 9.5 í einkunn.  Það er enn smá séns. Við sjáum hvernig þetta fer,“ sagði Kristján Páll Rafnsson

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert