Veiði er hafin í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum og hafa margir beðið þess spenntir að geta farið að kasta á stóru urriðana. Einn er sá sem sækir þessar veiðar meira en flestir og það er Cezary Fijalkowski.
Hann var að sjálfsögðu mættur manna fyrstur á fyrsta degi og hann var svo sannarlega verðlaunaður. „Við fengum svakalegan fisk. Hann var 95 sentimetrar og ég giska á að hann hafi verið 21 pund. Það er alveg dásamlegt að vera aftur kominn út að veiða,“ sagði Cezary í samtali við Sporðaköst.
Þetta er einn af stærstu urriðum vorsins sem við höfum heyrt af, en nokkrir fiskar af svipaðri stærð hafa veiðst í landi Kárastaða í vor.
Ótrúleg tilviljun réð því að félagarnir Árni Kristinn Skúlason, Jón Stefán Hannesson og Auke van der Ploeg lentu í hörkuveiði rétt áðan. „Við ætluðum inn á hálendið, en hættum við og ætluðum að kíkja í Skaftá en hættum við það líka. Við vissum að væru lausar stangir í Ytri-Rangá og skelltum okkur þangað. Við sjáum sko ekki eftir því,“ sagði Árni Kristinn í samtali við Sporðaköst.
Eftir einn og hálfan klukkutíma voru þeir félagar búnir að landa fjórum stórum fiskum, þar sem tólf punda staðbundinn urriði bar af. Þeir voru búnir að missa nokkra og auk þess fá fullt af tökum. Allt var þetta á Squirmy og það í Djúpósi.
Menn voru víða að veiða í dag og Sporðaköst vilja nota tækifærið og óska öllu veiðifólki gleðilegs veiðisumars.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |