Dregur saman með Tóta og Árna Bald.

Árni Baldursson með flottan lax úr Skjálfandafljóti fyrir nokkrum árum.
Árni Baldursson með flottan lax úr Skjálfandafljóti fyrir nokkrum árum. Mynd: www.lax-a.is

Undanfarin ár hafa Sporðaköst tekið stöðuna á heildarlaxveiði hjá Tóta tönn og Árna Baldurssyni. Tóti eða Þórarinn Sigþórsson tannlæknir tók því ljúflega að líta á almanakið þar sem hann skrifar niður fjölda laxa. 

„Já ég kíkti á þetta fyrir þig. Talan í dag er 20.980 laxar,“ segir hann og er ekkert sérlega ánægður. Þetta er ekkert að ganga núna,“ segir hann.

Nokkru áður höfðu Sporðaköst rætt við Árna Baldursson og tala hjá honum er núna 18.618 laxar. Tóti er sem sagt með 2.362 laxa í forskot á Árna.

Þórarinn Sigþórsson, Tóti tönn, landar einum af fyrstu löxum sumarsins …
Þórarinn Sigþórsson, Tóti tönn, landar einum af fyrstu löxum sumarsins í Blöndu fyrir nokkuð mörgum árum síðan. Þetta er einn af 20.980 löxum sem hann hefur landað. Ingi Freyr Ágústsson

Fyrst þegar þessi samanburður var gerður hér á síðunni, árið 2019 þá var munurinn 3.930 laxar. Tóti með 20.686 laxa og Árni Baldursson með 16.756.

Tóti er búinn að bóka mikið í sumar. Tvær eða þrjár ferðir í Kjarrá, Þjórsá er á dagskránni. „Ég ætla að slappa vel af í sumar og er hættur að taka við nýjum sjúklingum. Ég fer víðar. Ætla í Jöklu, Blöndu, Breiðdalsá og Eystri-Rangá.“

Það er þá ljóst að þú ert að fara yfir 21 laxa í sumar. Vantar bara tuttugu fiska í það?

„Já. Ég tel það líklegt. Nema ég verði bráðkvaddur,“ hlær hann.

Hvernig líst þér á sumarið Tóti?

„Sko, ég held að ef ég færi að tjá mig um það þá yrði það sama vitleysa og frá öllum öðrum. Það veit enginn neitt í sinn haus í þessu. Sjáðu bara síðasta sumar. Það átti að vera metveiði. Allir fræðimenn og veiðimenn voru að spá metsumri. Það er bara ekki á vísan að róa í þessu.“

Hann segir að allir spádómar séu út í bláinn, en að veiðimenn voni alltaf það besta. 

„Ég get þó spáð því að þetta verður andskotakornið ekki verra en í fyrra. Þessi spádómur gæti alveg ræst.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert