Ef þú heyrir af spennandi veiðiperlum getur verið gott að leggja þær á minnið. Árni Kristinn Skúlason og félagar hans upplifðu það í gær. Þeir voru í hálfgerðu reiðileysi að veiða við Klaustur og enduðu í Hæðagarðsvatni.
Þeir voru að setja í fisk en hann var smár. Þá félaga langaði í ævintýri. Hringt var í undirritaðan, ritstjóra Sporðakasta.
„Hæ, ég man eftir tjörnum sem þú talaðir um í podcastinu Flugucastið.“
Undirritaður kannaðist við það. „Já alveg rétt. Eru þið fyrir austan?“
Það var raunin og á endanum var þeim gefinn upp síminn hjá Jónasi bónda Erlendssyni í Fagradal við Kerlingadalsá.
„Þið bara heyrið í honum og kaupið leyfi. Ég hef fengið þarna upp í átta punda urriða. Hann er mjög sanngjarn á verðinu. Það eru þrjár tjarnir ofan við þjóðveg eitt og svo er ein stór neðan við veg. Um að gera að prófa þetta allt. Ég hef oftast veitt þarna á straumflugur, en þið púpusnillingarnir reynið kannski eitthvað annað. Hringið þegar þið eruð komnir á staðinn og ég lóðsa ykkur.“
Nokkru síðar hringir síminn og það er Árni. „Þær eru svo litlar þessar tjarnir. Hvernig eigum við að gera þetta?“
Eftir ráðleggingar og bollaleggingar fara þeir félagar, þrír á stöng, eins og hlaðvarpið þeirra heitir í dag að kasta með Auke vini sínum. Skilyrði var að gefa skýrslu eftir veiði.
Fljótlega barst myndskeið og þar var Árni með allt í keng. Hann landaði 5,5 punda urriða og var alsæll. Afar kalt var á Suðurlandi í dag og þeir félagar entust ekki lengi.
„Ætlið þið aftur?“
Árni var fljótur til svars. „Ekki spurning. Þetta er alger perla og leyfið kostar bara tvö þúsund krónur. Vorum að gúffa í okkur borgara í Smiðjunni í Vík og erum lagðir af stað í bærinn,“ sagði kátur veiðimaður í samtali við Sporðaköst í í kvöld.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |