„Eftirspurn um besta tíma í Sandá var margföld, svo maður kveði ekki fastar að orði. Við höfum aldrei fengið annað eins magn af fyrirspurnum og í Sandá í sumar. Það var líka áberandi að margir gengu í félagið til að eiga möguleika á að sækja um leyfi í ána,“ sagði formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur í samtali við Sporðaköst.
Hann heldur áfram. „Þetta er fyrir okkar félagsmenn. Þetta er ekki að fara til útlendinga eða annarra en okkar félagsmanna. Þetta er stórlaxaáin okkar og hún er fyrir okkar félagsmenn. Þetta er eitthvað sem vantaði í okkar flóru og við stöndum sterkari sem félag með þessa á.“
Jón Þór Ólason segir að viðtökur hafi verið í samræmi við væntingar. „Biðlistar eru langir og því miður er það þannig að færri komast að en vilja. En þar sem áin er í fyrsta skipti á opnum markaði þá er frábært að margir nýir veiðimenn eru að fara að kynnast ánni.“
Jón segir að Sandá hafi einfaldlega selst upp í forsölu til félagsmanna.
Margt stendur til í Sandá í sumar. Mikið á að leggja í að laga slóða meðfram ánni og einnig er verið að lagfæra veiðihúsið mikið. Skipta um gólfefni, laga eldhús, ný rúm og húsið verður gert tip top, eins og Jón Þór orðar það. „Húsið var búið að þjóna miklu og góðu hlutverki en nú er það bara komið á tíma og við ætlum að taka á því fyrir sumarið,“ sagði Jón Þór og auðheyrt var á honum að hann var ánægður með hvernig félagsmenn brugðust við þessu nýja vatnasvæði SVFR.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |