Hólmfríður snýr aftur í Mývatnssveitina

Hólmfríður Jónsdóttir frá Arnarvatni tekur á nýjan leik við sem …
Hólmfríður Jónsdóttir frá Arnarvatni tekur á nýjan leik við sem staðarhaldari í veiðihúsinu Hofi í Mývatnssveit. Ljósmynd/Einar Falur

Hólmfríður Jónsdóttir frá Arnarvatni í Mývatnssveit tekur á ný við keflinu sem staðarhaldari í veiðihúsinu Hofi við Laxá. Hólmfríður sá um langa hríð um veiðihúsið, en hætti árið 2008. Nú þrettán árum síðar snýr hún aftur.

Þegar Sporðaköst hringdu í Hólmfríði og óskuðu henni til hamingju með að vera að mæta til leiks á ný fékk hún langt hláturkast. Og það var býsna smitandi. „Mér finnst þetta drepfyndið,“ hló hún.

Þegar fyrstu veiðimenn koma í urriðaparadísina í Mývatnssveit á föstudag mun Hólmfríður taka á móti hollinu. „Jú, þetta er rétt. Ég er að koma aftur. Mér bara leiddist og þetta er mjög spennandi,“ sagði Hólmfríður, eða Hódda eins og hún er oft kölluð. Hún skellti enn upp úr.

Hólmfríður var nánast innanstokksmunur í Hofi og hafði verið afar lengi. Hún hóf veiðieftirlit og sölu á veiðileyfum 1973. Það var svo árið 1996 að hún tók við veiðihúsinu Hofi og rak það fram til ársins 2008.

Hólmfríður, eða Hódda er veiðiáhugamaður. Hér er hún að gera …
Hólmfríður, eða Hódda er veiðiáhugamaður. Hér er hún að gera klárt fyrir sjávarveiði á strönd í Ástralíu. Hún veiðir annars bara á flugu. En segist vera góð að veiða í net líka. Ljósmynd/HJ

Kolbeinn Grímsson hnýtti á sínum tíma flugu sem hann skírði í höfuðið á henni og hún heitir einfaldlega Hólmfríður. Það væri nú lag að nota þessa fallegu straumflugu í fyrstu túrunum henni til heiðurs.

„Það hlýtur að vera komin ný kynslóð veiðimanna. Þetta hefur samt fylgt mér öll þessi ár því þetta er svo stór hluti af mínu lífi. Ég vona að þetta gangi bara vel.“

Hún heldur að slóðar séu í lagi þó að vorið hafi komið frekar seint. Sagðist reyndar ekki hafa kíkt niður á Brettingsstaði en taldi að slóðinn væri í lagi þar sem vetur var mjög snjóléttur.

Við Laxá í Mývatnssveit. Eitt fallegasta veiðisvæði á Íslandi og …
Við Laxá í Mývatnssveit. Eitt fallegasta veiðisvæði á Íslandi og þó víðar væri leitað. Einar Falur

En hefurðu fylgst með veiðinni eftir að þú hættir?

„Já. Ég hef gert það og tek eftir að það hefur orðið nokkuð mikil breyting á hvar menn veiða, eftir að ég hætti. Ég held að það geti verið að fólk geri minna af því að labba á þá staði þar sem lengst er að fara. Til dæmis Vörðuflóinn er ekki að gefa nærri eins mikið og hann gerði áður. Arnarvatnssvæðið og Geldingaey eru svo að gefa miklu meiri veiði.“

Mörgum veiðimönnum sem hafa stundað þetta svæði þykir afar vænt um að fá Hólmfríði aftur. Sporðaköst bjóða hana velkomna á nýjan leik.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert