Hraunsfjörðurinn farinn að gefa

Þórarinn Þorbergsson sem flotta veiði úr Hraunsfirði í gær. Hann …
Þórarinn Þorbergsson sem flotta veiði úr Hraunsfirði í gær. Hann og félagi hans, Helgi Sigurðsson lönduðu tíu bleikjum á örlitla spinnera á rúmum tveimur tímum. Ljósmynd/Helgi Sigurðsson

Sjóbleikjan í Hraunsfirði er svo sannarlega farin að gefa sig. Helgi Sigurðsson og félagi hans Þórarinn Þorbergsson voru þar í gær við veiðar og lönduðu á rúmum tveimur tímum tíu bleikjum og voru allar nema tvær á bilinu 45 til 55 sentímetrar.

Eins og Helgi lýsir sjálfur þá voru þeir við fyrsta tanga fyrir innan grjótgarðinn að vestanverðu. „Við vorum að veiða þetta á örlitla spinnera og fiskurinn var mjög nálægt landi. Við sáum fisk á fleiri stöðum og urðum varir. Það voru ekki svo margir veiðimenn á svæðinu en við sáum allavega einn landa fiski skammt frá okkur í hraunkantinum,“ sagði Helgi í samtali við Sporðaköst seint í gærkvöldi.

Hann þekki svæðið vel og fer oftast til veiða í hraunkantinum að austanverðu. Hann sagði að þegar þeir félagar voru að hætta skömmu fyrir kvöldmat í gær voru fleiri veiðimenn að mæta á svæðið.

Þetta er náttúrulega einn best matfiskur sem völ er á?

„Já, sammála því. Konan sér nú yfirleitt um eldamennskuna. Við höfum þetta einfalt. Oftast pönnusteikt upp úr smjöri.“

Hraunsfjörðurinn er inni í Veiðikortinu og er það frábær fjárfesting fyrir veiðimenn sem eru á ferðinni og tilbúnir að kynnast ýmsum veiðistöðum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert