Laxá í Leirársveit á góðu róli

Sigríður Johnson með nýrunninn lax úr Laxfossi í Laxá í …
Sigríður Johnson með nýrunninn lax úr Laxfossi í Laxá í Leirársveit. Laxfoss er eitt af kennileitum Laxár. Ljósmynd/Ólafur Johnson

Veiðin í Laxá í Leirársveit er á góðu róli. Samanborið við veiðina í fyrra hefur hún skilað töluvert meiri veiði en á sama tíma 2020. Hún hefur nú gefið ríflega þrjú hundruð fiska og að sögn Ólafs Johnson leigutaka hafa verið góðar göngur í ána og laxinn er orðinn vel dreifður.

„Við erum með fínt vatn og það er gott magn af fiski. Þetta byrjaði rólega hjá okkur eins og flestum en við kennum bara köldu vori um og allt lífríkið var seinna á ferðinni,“ sagði Ólafur í samtali við Sporðaköst.

Síðasta stóra árið í Leirársveitinni var 2015 en þá fór veiðin yfir ellefu hundruð laxa. Hörmungaárið 2019 gaf hins vegar ekki nema 359 laxa. Það er því ljóst ef fram heldur sem horfir að Laxá gæti skilað góðri tölu þegar upp er staðið.

„Það er ekki langt síðan það var holl hjá okkur þar sem komu fimm maríulaxar og það var afskaplega ánægjulegt,“ sagði Ólafur. Fjöldi maríulaxa segir til um að margir byrjendur hafi verið í því holli og þá hjálpar til að mikið sé af laxi.

Miðfellsfljótið er magnaður veiðistaður í Laxá. Katrín Sæland Einarsdóttir er …
Miðfellsfljótið er magnaður veiðistaður í Laxá. Katrín Sæland Einarsdóttir er hér með spegilbjartan lax úr fljótinu. Ljósmynd/Ólafur Johnson

Staðan á Laxá í Leirársveit er í takt við það sem er að gerast í Laxá í Kjós, Leirvogsá og borgaránum Korpu og Elliðaám. Þessar ár eru ekki að fara að slá nein met en ágætis magn af laxi er komið í þær og veiðin fór hægar af stað en oft áður og vitna menn þar til vorsins sem var kalt og þurrt.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert