Hvar var besta veiðin í sumar? Með einföldum útreikningum er hægt að svara því. Heildarfjöldi laxa í laxveiðiá segir ekki nema brot af sögunni. Við ákváðum að reikna þetta með þeim hætti að finna út meðaltal veiddra laxa á stöng á dag. Við deilum svo í þá tölu með fjölda veiðidaga sem er á flestum stöðum í kringum 90 dagar. Þá skýrist myndin og hægt að sjá hvar besta veiðin var.
Andakílsá fer í efsta sæti, raunar eins og í fyrra. Þessi litla tveggja stanga á gaf 518 laxa í sumar. Hún var að skila tæplega þremur löxum á stöng á dag. Það er hörkuveiði. Urriðafoss er í öðru sæti, þó svo að þaðan hafi ekki borist tölur frá því seint í ágúst. Miðfjarðará er í þriðja sæti og Laxá í Dölum tekur fjórða sætið í þessum útreikningum. Haffjarðará í því fimmta.
Miðfjarðará er með tvo laxa á stöng á dag. Það þýðir að hver veiðimaður þar í sumar veiddi á þremur dögum að meðaltali sex laxa, að því gefnu að hann hafi verið einn á stöng. Á móti kemur að hafi sami veiðimaður farið í Laxá í Aðaldal, sem er með hlutfallið 0,37 laxar á stöng á dag, hefði hann mátt búast við að ná rúmlega einum laxi á þremur dögum. Það hefði líka samkvæmt meðaltalinu gert það að verkum að félagi hans fékk engan.
Hér að neðan er listinn yfir árnar þar sem miðað er við veiði á dagstöng. Þessi listi er unninn út frá upplýsingum á angling.is, eins og tölurnar standa núna. Landssamband veiðifélaga heldur úti þeim vef. Flestar ár eru búnar að birta lokatölur en engu að síður tökum við þennan lista nú saman. Reikniformúlan er einföld. Fjöldi stanga í viðkomandi á deilt með fjölda veiddra laxa. Við tökum þetta enn lengra og deilum í með 90, sem er fjöldi veiðidaga í flestum ám. Þá kemur út hver veiðin er á stöng á dag að meðaltali. Það er hinn raunsanni mælikvarði á hversu mikil veiðivon var í einstökum ám. Hér er ekki tekið tillit til verðs, þjónustu, tímabils eða slíkra þátta. Eingöngu er horft á tölur.
Þar sem enn er nokkuð eftir af veiðitíma í Rangánum eru þær ekki teknar inn í þennan útreikning. Þá er líka vert að hafa í huga að uppgefinn fjöldi stanga er tekinn af angling.is en þar geta hafa orðið breytingar. Má nefna að í Miðfjarðará er veitt á sex stangir fyrri hluta veiðitímans og myndi það hækka hlutfallið þar verulega, væri tekið tillit til þess. Sama má segja um Laxá í Dölum en þar er veitt á fjórar stangir framan af veiðitímanum. Þá er líka vert að hafa í huga með Jöklu að þar náðist engan veginn níutíu daga veiðitími og hlutfallið þar því í raun hærra en þessi reikniformúla gefur til kynna.
Veiðisvæði Fjöldi laxa Fjöldi stanga Á stöng Á dag
Andakílsá 518 2 259 2,88
Urriðafoss 823 4 205 2,29
Miðfjarðará 1.796 10 180 2,00
Laxá í Dölum 1.021 6 170 1,89
Haffjarðará 914 6 152 1,70
Laxá á Ásum 600 4 150 1,66
Leirvogsá 279 2 139 1,55
Laxá í Leirársveit 814 6 136 1,51
Laxá í Kjós 1.059 8 132 1,47
Selá í Vopnafirði 764 6 127 1,41
Hrútafjarðará 372 3 124 1,38
Elliðaár 617 6 103 1,14
Þverá/Kjarrá 1.377 14 98 1,10
Norðurá 1.431 15 95 1,06
Grímsá 756 8 95 1,05
Víðidalsá 737 8 92 1,02
Straumfjarðará 370 4 92 1,02
Hofsá í Vopnaf. 601 7 86 0,95
Haukadalsá 366 5 73 0,81
Vatnsdalsá 427 6 71 0,79
Langá 832 12 69 0,77
Hítará 584 8 68 0,76
Jökla 540 8 67 0,75
Blanda 418 8 52 0,58
Laxá í Aðaldal 401 12 33 0,37
Vert er að benda á fleiri ár. Mýrarkvísl með hlutfallið 0,50. Búðardalsá sú litla tveggja stanga á gaf að meðaltali á stöngina 0,61 lax á hverjum degi. Svo er hægt að fara inn á angling.is og finna sína á og reikna út þetta hlutfall. En listinn er ansi frábrugðinn þeim lista þar sem eingöngu er horft til heildartölu, óháð fjölda stanga.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |