Alheimsfrumsýndu í Ýdölum

Allt gert klárt fyrir heimsfrumsýningu í Ýdölum. Leikstjórar ræða málin …
Allt gert klárt fyrir heimsfrumsýningu í Ýdölum. Leikstjórar ræða málin við Árna Pétur Hilmarsson heimamann og einn af rekstraraðilum Laxár. Ljósmynd/Ingibjörg Sigurjónsdóttir

Gamanmyndin Allra síðasta veiðiferðin var alheimsfrumsýnd í félagsheimilinu Ýdölum í Aðaldal á föstudag. Myndin er sjálfstætt framhald á myndinni Síðasta veiðiferðin sem sló rækilega í gegn. Allir sömu leikarar eru mættir og heldur er gefið í þar sem stór nöfn bætast í hópinn.
Þessa fyrsta sýningu fengu heimamenn í Aðaldal boð um að koma á, ásamt aðstandendum myndarinnar, en sögusviðið er einmitt Laxá í Aðaldal.


Ríflega tvö hundruð manns mættu og voru viðtökur góðar, eftir því sem frumsýningagestir hafa tjáð sig um myndina. Þannig skrifar Ingibjörg Sigurjónsdóttir á Laxamýri á facebook síðu sína eftir að hafa horft á myndina að hún hafi hlegið sig máttlausa margsinnis og maskarinn hafi verið í stórhættu því hún grét af hlátri.

Allra síðasta veiðiferðin er sjálfstætt framhald Síðustu veiðiferðarinnar sem sló …
Allra síðasta veiðiferðin er sjálfstætt framhald Síðustu veiðiferðarinnar sem sló rækilega í gegn. Ljósmynd/Markell

Framleiðendur og leikstjórar eru þeir Þorkell S. Harðarson og Örn Marinó Arnarson, en fyrri myndin er einnig þeirra hugverk. Þeir félagar voru ánægðir með viðtökurnar. „Það var hlegið á réttu stöðunum, en líka þar sem við áttum ekki von á hlátri. Það er alltaf svo skemmtilegt,“ sagði Örn Marinó í samtali við Sporðaköst.
Þorkell, eða Keli eins og hann er alltaf kallaður fylgdist vel með salnum. „Þetta voru býsna jöfn hlutföll af báðum kynjum. Konurnar hlógu mun meira en maður hafði á tilfinningu að karlarnir hefði verið böstaðir,“ brosti Keli góðlátlega þegar hann sagði þetta.


Myndin fer í almennar sýningar þann 18. mars og eiga þeir félagar von á góðum viðtökum í Covidfríu umhverfi.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert