Nýtt stangaveiðifélag á Suðurnesjum

Styrmir Fjeldsted, nýkjörinn formaður nýstofnaðs Fluguveiðifélags Suðurnesja á góðri stund …
Styrmir Fjeldsted, nýkjörinn formaður nýstofnaðs Fluguveiðifélags Suðurnesja á góðri stund að gera nákvæmlega það sem nýja félagið snýst um. Brosa og veiða. Ljósmynd/FFS

Stofnfundur Fluguveiðifélags Suðurnesja var haldinn síðastliðið mánudagskvöld að viðstöddum fimmtíu stofnfélögum af Suðurnesjum. Félagið ber vinnuheitið Fluguveiðifélag Suðurnesja þar til kosið verður um nafn til frambúðar á aðalfundi félagsins sem haldinn verður eftir sex vikur.

„Markmið félagsins er að halda úti félagsstarfssemi tengdri stangveiði og útvega félagsmönnum veiðileyfi á betri kjörum en ella, en megin áhersla verður á fluguveiði, virðingu fyrir náttúru og dýrum, sem og að halda úti öflugu félags og fræðslustarfi sem eflir hróður Suðurnesjamanna innan stangveiðinnar á Íslandi,“ segir í tilkynningu frá nýstofnuðu félagi.

Aníta Carter er stjórnarmaður í félaginu. Hér í haustveiði með …
Aníta Carter er stjórnarmaður í félaginu. Hér í haustveiði með fallegan lax. Ljósmynd/FFS


Kosið var til formanns og stjórnar, en formaður var kjörinn Styrmir Fjeldsted, en með honum í stjórn sitja Alfreð Elíasson, Aníta Carter, Brynjar Þór Guðnason, Bjarki Már Viðarsson, Marel Ragnarsson og Trausti Arngrímsson.

Í tilkynningu frá félaginu er vitnað í nýkjörinn formann. „Eftir að hafa átt mörg samtöl við fólk á Suðurnesjunum var það klárt mál að vöntun væri á slíkum félagsskap, sjálfur hef ég í þó nokkur ár verið að væflast hingað og þangað í veiði en aldrei fundið minn flöt innan hóps tengdum stangveiðinni hér á þessu svæði, hvort sem það sé að manna holl í veiði, eða jafnvel bara að hittast og spjalla, hnýta nokkrar flugur eða segja veiðisögur til þess að stytta dimmustu daga ársins yfir veturinn þegar maður er ekki við bakkann.

Brynjar Þór Guðmundsson var kjörinn í stjórn nýja félagsins.
Brynjar Þór Guðmundsson var kjörinn í stjórn nýja félagsins. Ljósmynd/FFS


Með stofnun félagsins stefnum við á að halda uppi öflugu félagsstarfi og hinum ýmsu viðburðum eins og kastkennslu, fluguhnýtingarkvöld, veiðistaðakynningum ásamt mörgu öðru sem er í bígerð.

Framtíðarmarkmið félagsins verður svo að taka ársvæði að leigu innan fáeina ára frá stofnun. Allir eru velkomnir í félagið og munu félagsgjöld verða ákveðin á næstkomandi aðalfundi. Töluvert er um nýskráningar af félögum ofan á þann fjölda meðlima sem létu sjá sig á stofnfundinum,” sagði Styrmir Fjeldsted formaður Fluguveiðifélags Suðurnesja.

Trausti Arngrímsson er stjórnarmaður í Fluguveiðifélagi Suðurnesja. Öflugur hópur veiðimanna …
Trausti Arngrímsson er stjórnarmaður í Fluguveiðifélagi Suðurnesja. Öflugur hópur veiðimanna hefur tekið sig saman og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. Ljósmynd/FFS

Fróðlegt verður að fylgjast með félaginu en innan hópsins eru landsþekktir veiðimenn á borð við þá Örlygsbræður og raunar má segja að fyrrverandi körfuboltamenn úr Njarðvík séu hátt hlutfall stofnenda. 

Alfreð Elíasson hlaut kjör í stjórn félagsins. Samtals eru hátt …
Alfreð Elíasson hlaut kjör í stjórn félagsins. Samtals eru hátt í sjötíu manns búnir að skrá í nýtt félag. Ljósmynd/FFS


Í samtölum við stjórnarmenn kom einnig fram að fyrsta verkefnið, veiðilega séð verður að kaupa stök holl fyrir félagsmenn og manna þau.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert