Norðurá lengi verið í sigtinu

Rafn Valur Alfreðsson með fallegan tveggja ára lax úr Miðfjarðará.
Rafn Valur Alfreðsson með fallegan tveggja ára lax úr Miðfjarðará. Ljósmynd/Aðsend

Nú eru ekki nema tvær vikur í að laxveiðitímabilið hefjist. Að vanda hafa breytingar orðið á umsjón og leigu nokkurra veiðiáa og ein er sú að Rafn Valur Alfreðsson hefur tekið við sem sölustjóri Norðurár í Borgarfirði af Einari Sigfússyni sem sá um sölu leyfa frá árinu 2013, þegar samningi Stangaveiðifélags Reykjavíkur um ána lauk.

Norðurá er ein af bestu og þekktustu veiðiám landsins og í henni fjölmargir gjöfulir og sérlega fallegir veiðistaðir. En Rafn er aldeilis ekki ókunnugur fögrum, gjöfulum veiðiám því síðustu 13 ár hefur hann verið leigutaki hinnar margbrotnu Miðfjarðarár. Og vinna hans við þá gæðaá hefur heldur betur vakið athygli því veiðin jókst til muna eftir að hann tók við.

„Ég skrifaði undir samninginn um leiguna á Miðfjarðará í ágúst 2008, korteri fyrir hrun,“ segir Rafn um upphaf ævintýris hans í Miðfirði.

„Og það hefur gengið frábærlega, að öllu leyti,“ segir hann um tíma sinn þar. „Á þessum tíma hefur meðalveiðin tæplega þrefaldast, frá því sem hún var á 25 ára tímabili þar áður. Meðan enn var verið að maðka og drepa, með engan kvóta, þá var meðalveiðin ekki nema um 1.150 laxar á sumri. Síðan ég tók við er meðalveiðin tæplega 3.000 laxar.“

Nýgenginn og kröftugur lax kominn í háfinn í Norðurá.
Nýgenginn og kröftugur lax kominn í háfinn í Norðurá. mbl.is/Einar Falur

Hverju þakkarðu það?

„Auðvitað veiða-og-sleppa, fyrst og fremst. Svo er frábær hópur leiðsögumanna alltaf við ána, menn sem þekkja ána gríðarlega vel, og yfir níutíu prósent veiðimanna veiða með leiðsögumanni. Það hjálpar til við að halda álaginu ásættanlegu á veiðistaði, mikið er veitt með litlum flugum og gengið varlega um veiðistaðina.“

„Brilljant samtenging“

En hvers vegna sóttist þú eftir Norðurá, að bæta henni við hjá þér?

„Norðurá hefur lengi verið í sigtinu hjá mér,“ svarar Rafn.

„Ég hef lengi sagt að einhver flottasta veiðitvenna sem hægt væri að bjóða laxveiðimönnum upp á væri að veiða Norðurá og Miðfjarðará. Um níutíu prósent af kúnnunum okkar í Miðfirði eru útlendingar sem koma til veiða í þrjá til sex daga, og landfræðilega og veiðilega þá er þetta brilljant samtenging. Við erum þegar með töluvert af veiðimönnum sem koma í sumar að veiða báðar árnar. Og hefðum við skrifað undir fyrr í fyrra, þá hefði ég haft enn betra tækifæri til að kynna Norðurá fyrir enn fleirum af fastakúnnum mínum í Miðfirði. Margir þeirra þekkja ekki Norðurá – þótt þeir aki alltaf meðfram henni á leið norður.“

Laxfoss í Norðurá. Eitt helsta kennileiti árinnar.
Laxfoss í Norðurá. Eitt helsta kennileiti árinnar. nordura.is

Norðurá enn undirverðlögð

„Ég lagði mikla vinnu í að reyna að ná Norðurá og það tókst. Ég held að ég hafi sannfært stjórn veiðifélagsins um að ég væri góður kostur í verkið. Og áin er strax mjög vel seld fyrir sumarið. Ég held að hún hafi sjaldan verið jafn vel bókuð, og líklegast aldrei á jafn góðu verði og nú. En mér finnst hún samt enn vera undirverðlögð í samanburði við margar nágrannaárnar.“

Rafn segir að þótt talsvert verði af erlendum veiðimönnum í Norðurá þá veiði líka margir Íslendingar ána enda sterk hefð fyrir því.Þá henti áin að mörgu leyti vel fyrir fyrirtækjamarkaðinn.

Rafn hefur ætíð haft sterka nærveru við Miðfjarðará sem staðarhaldari en þeirri stöðu mun Brynjar Hreggviðsson gegna við Norðurá.

Þekkir hana ekki neitt

Ákveðnar breytingar verða gerðar í sumar á því veiðifyrirkomulagi sem tíðkast hefur í Norðurá mörg undanfarin ár. Svokallað Munaðarnessvæði verður ekki lengur selt sér fyrri hluta sumars heldur verður aðalveiðisvæðið lengt þangað niður eftir. Þá verður hætt að selja stangir á Flóðatanga og verður það frísvæði fyrir veiðimenn.

„Þar var veitt á maðk og spún alveg fram á síðasta ár og nú var tekin ákvörðun um að hætta því. Nú er því í fyrsta skipti hægt að segja að aðeins sé veitt með flugu í Norðurá, á öllum svæðum,“ segir Rafn. Efri hluti árinnar, kallaður Norðurá II, verður eins og áður seldur sér frá 6. júní til 1. september, þrjár stangir með húsi í sjálfsmennsku.

Þekkirðu Norðurá vel?

„Nei, ég þekki ekki hana ekki neitt,“ svarar Rafn hlæjandi.

„Ég hef veitt ána þrisvar í júní. Ég hef leitað mér upplýsinga hjá fólki sem þekkir ána vel og svo fer sumarið núna í að læra á hana, og á reksturinn og starfsemina. Landeigendur vissu að þeir væru ekki að fá mann sem þekkti ána út og inn heldur treysta þeir mér til að selja vöruna. Og reka þetta.

Ég er búinn að kaupa mér stöng í þremur hollum í sumar, í opnun, með félögum mínum í lok júní og í Norðurá II í ágúst. Og hlakka til!“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert