Opnunarvakt í Mývatnssveit í sögubækur

Þeir félagar Jóhann Jón Ísleifsson og Árni Friðleifsson léttklæddir í …
Þeir félagar Jóhann Jón Ísleifsson og Árni Friðleifsson léttklæddir í sumarblíðunni fyrir norðan. Árni var að koma úr útskriftarveislu og fer svo beint í þessa veiðiveislu sem er í Mývatnssveitinni. Ljósmynd/ÁF

Veiðin á opnunarvaktinni í Laxá í Mývatnssveit verður skráð í sögubækur. Árni Friðleifsson lögregluforingi veiddi Arnarvatnslandið í morgun og komu á land 25 fiskar þar á tvær stangir. „Við erum búnir að vera að telja þetta saman í hléinu og þetta er eitthvað um 150 fiskar, sem meira en ég hef séð hér áður á fyrstu vakt. Mér segja líka reyndari menn sem eru hér að þetta hafi ekki byrjað af svona miklum krafti í þeirra tíð.“

Eins og oft áður var veiðin mest í Skurðinum í Geirastaðalandi. Árni telur að þeir sem hafi verið þar hafi landað um sextíu fiskum á vaktinni. „Skurðurinn er bara pakkaður af fiski. Og þetta er virkilega vel haldinn og flottur fiskur,“ upplýsti Árni.

Gleðin við völd. Samtals komu 25 fiskar á Arnarvatnslandi í …
Gleðin við völd. Samtals komu 25 fiskar á Arnarvatnslandi í morgun. Hér er einn þeirra og hann kallaði fram ánægjubros. Ljósmynd/JJS

Það var helst að neðsta svæðið, Hamar væri rólegt. Miklir reynsluboltar veiddu Brettingsstaði og lentu þeir í veislu eins og svo margir í morgun. „Þeir hættu bara þegar þeir voru komnir með einhverja tólf og fóru bara á rúntinn að kíkja á mannskapinn.“

Það er auðvelt að verða saddur í veiðiskapnum þegar svona vel gengur. Árni nefndir fleiri veiðistaði sem gáfu vel í morgun. Hrófið var gott og svo var veisla í Goggavík.

Þykkir og flottir fiskar sem Mývatnssveitin geymir núna.
Þykkir og flottir fiskar sem Mývatnssveitin geymir núna. Ljósmynd/ÁF

„Veðrið hérna er náttúrulega bara draumur. Ekki ský á himni, tuttugu gráður og hægur vindur. Í fyrra vorum við Jóhann félagi minn í norðanbáli og við fundum ekki nóg af fötum til að troða okkur í. Nú er stuttermabolurinn jafnvel aðeins of mikið,“ hló Árni.

Þeir félagar voru að taka mest af þeim fiskum sem þeir fengu á hefðbundnar púpur eins og Pheasant Tail og sambærilegar. „Jonni fékk líka nokkra á Sunray. Einn æðislega flottan uppi í Steinsrassi. Þannig að það er ýmislegt að virka,“ sagði Árni.

Fyrir nákvæmlega ári. Jóhann í öllum þeim fatnaði sem hann …
Fyrir nákvæmlega ári. Jóhann í öllum þeim fatnaði sem hann gat troðið sér í. Nú er stuttermabolurinn næstum of mikið. Ljósmynd/ÁF

Gaman verður að heyra heildartöluna úr hollinu þegar þessir kappar hætta á miðvikudag. Þá hafa borist fréttir af skemmtilegri veiði á Torfunum og sömuleiðis er þar um að ræða flotta og vel haldna fiska.

Fjölmargir birtu fallegar útskriftarmyndir af afkvæmum og barnabörnum í gær sem voru að ná merkilegum áföngum. Í dag eru það hins vegar myndir af bleikjum og urriðum úr hinum ýmsu áttum. Elliðavatn var gefa, Úlfljótsvatn, Ásgarður í Sogi, Eldvatn og Urriðavatn svo einhver svæði séu nefnd. Það er ljóst að þetta sumarveður á landinu er kalla fram það besta í veiðimönnum og fiskum. 

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert