Fjórtán konur „köstuðu til bata“

Hópurinn sem dvaldi við Langá í blíðskaparveðri og naut leiðsagnar …
Hópurinn sem dvaldi við Langá í blíðskaparveðri og naut leiðsagnar í stangveiði. Kastað til bata fór nú fram í þrettánda skipti. Ljósmynd/HG

Þrettánda árið í röð stóð Krabbameinsfélagið og Brjóstaheill – Samhjálp kvenna fyrir verkefninu „Kastað til bata“í samstarfi við við SVFR og Veiðihornið.

Í ár tóku fjórtán konur þátt í þessu endurhæfingarverkefni og nutu leiðsagnar og aðstoðar níu kvenna úr Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Er það í fyrsta skipti sem allir leiðsögu- og aðstoðarmenn er konur.

Endurhæfingarverkefnið Kastað til bata, á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna þar sem verkefnið heitir Casting for recovery. Hér á landi var það fyrst kynnt og framkvæmt árið 2010. Allar götur síðan hafa konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein haft aðgang að þessu framtaki. Í ár var farið upp í Langá á Mýrum sem SVFR er með á leigu. Þátttakendum nutu kennslu í undirstöðu atriðum fluguveiði og var dagskráin sambland af inni og útiveru. En af hverju fluguveiði?

Konurnar voru flestar að prófa fluguveiði í fyrsta skipti og …
Konurnar voru flestar að prófa fluguveiði í fyrsta skipti og ánægjan var mikil. Ljósmynd/HG

„Við sem þekkjum þá tilfinningu að standa ein við árbakkann vitum hversu mikil heilun og núvitund það er að veiða jafnvel þó að enginn fiskur bíti á. Það er því engin furða að þessi aðferð sé notuð sem hluti af bataferli í baráttunni við brjóstakrabbamein. Raunar held ég að veiði gæti hjálpað svo miklu fleirum en það var dásamlegt að njóta samverunnar við þessar konur og þetta var eitthvað fallegt og gefandi fyrir alla,“ sagði Helga Gísladóttir sem var ein af leiðsögumönnunum í ferðinni.

Fyrri daginn sem dvalið var á bökkum Langár var konunum kennt að klæða sig í vöðlur, setja saman stöng og fyrstu köstin tekin úti á túni. Því næst var farið að Langá og konurnar fengu að vaða yfir með aðstoð og því næst að kasta á rennandi vatn. Þetta var mikil upplifun fyrir margar þessara kvenna því fæstar höfðu tekið þátt í neinu svipuðu.

Hluti af leiðsögumönnunum eða konunum. Í fyrsta skipti voru að …
Hluti af leiðsögumönnunum eða konunum. Í fyrsta skipti voru að einungis konur sem aðstoðuðu þátttakendur. Ljósmynd/HG

Síðari daginn var farið til veiða og voru miklar framfarir og greinilegt að konurnar nutu þess að kasta á rennandi vatn og gleyma sér í núinu við að fylgja flugulínunni eftir.

„Ánægja og ýmsar útgáfur af þakklæti er það sem situr eftir hjá mér,“ sagði Helga Gísladóttir aðspurð um hvernig hefði til tekist.

Hún vildi sérstaklega þakka Maríu Önnu Clausen í Veiðihorninu sem sá um að lána vöðlur, vesti og allt tilheyrandi fyrir hópinn. Án þessa væri erfitt að framkvæma þetta, sagði Helga.

Ísland er ennþá eina norðurlandið sem tekur þátt í þessu verkefni.

Fyrir utan SVFR og Veiðihornið þá styrktu Garri, Matfugl, Bananar, MS, 66'N, Artasan Eucerin ísland, ofl. verkefnið.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert